Kvennakór Hornafjarðar
Humarskvísan og ný heimasíða Kvennakórsins!
Fyrsta kvenkyns humarmerkið "humarskvísan" hefur litið dagsins ljós og er þar með enn ein skvísan gengin til liðs við Kvennakór Hornafjarðar. Eru kvennakórskonur mjög stoltar af henni. Í tilefni af Landsmóti Kvennakóra hér á Hornafirði verður hún í landsmótsbúning og merki mótsins. Ryður hún eflaust braut fleiri humarstelpna á sínum vettvangi, en öll fyrri humarmerki eða "logó" eru oftast túlkuð karlkyns. Er vel við hæfi að hún komi fram á sjónarsviðið á sama tíma og ný heimasíða Kvennakórs Hornafjarðar opnar, hornafjordur.is/kvennakor. Á nýju heimasíðunni er efnisflokkurinn Landsmót 2008 og verður þar hægt að nálgast allar upplýsingar um mótið.
Þar verða gögn og upplýsingar fyrir kórfélaga, svo og ýmislegt um kórinn, og ekki má gleyma myndunum sem skjalfesta hin ýmsu ferðalög og uppátæki sem kórkonum hefur dottið í hug.



