Kórstjóri
Heiðar Sigurðsson tók við stjórn Kvennakórs Hornafjarðar haustið 2009. Hann er fæddur og uppalinn á Hornafirði og hefur verið viðriðinn hornfirskt tónlistarlíf frá unga aldri. Tónlistarmenntun sína hlaut Heiðar í Tónskóla A - Skaft. og í Tónlistarskóla FÍH, auk þess sem hann hefur stundað fjarnám frá Berklee College of Music í Boston. Heiðar hefur kennt við Tónskóla A-Skaftafellssýslu frá árinu 2005.



