Lions : Fréttir

Kraftur í Lionsmönnum

Mikill kraftur er nú í Lionsklúbbi Hornafjarðar. Í síðasta mánuði gengu þrír nýir félagar í klúbbinn og á næstunni verða þrír til viðbótar teknir formlega inn. Þetta er nokkuð sérstakt því það er algengara nú um stundir að erfitt sé að halda lífinu í ýmsum félagasamtökum. Klúbburinn fékk enda sérstaka viðurkenningu frá Alþjóða Lionshreyfingunni á dögunum fyrir þróttmikið starf og fjölgun félaga. Líknarsjóður Lionsklúbbsins hefur ákveðið að styrkja kaup á útsendingarbúnaði í Hafnarkirkju. Búnaðurinn gerir m.a. því heimilisflóki á Hjúkrunarheimili HSSA sem ekki er ferðafært kleift að fylgjast með því sem fram fer í kirkjunni. Búnaðurinn gagnast einnig við athafnir þegar ekki komast allir sem vilja í kirkjuna. Lesa meira
 

Sviðamessu fyrir alla í Pakkhúsinu

Á alþjóðaþingi Lionshreyfingarinnar 1925 skoraði Helen Keller á Lionsfélaga að þeir yrðu "Riddarar hinna blindu í krossför gegn myrkri." Lionshreyfingin tók áskoruninni og hóf að vinna að verkefninu. Sight First er verkfæri Lionshreyfingarinnar gegn blindu. Það var þróað af færustu sérfræðingum heimsins. Til að fjármagna þetta var árið 1991 hleypt af stokkunum Campaign Sight First verkefninu og var þá safnað á alþjóðavísu um 143 milljónum dollara sem með vöxtum fór í 200 milljónir dollara. Síðan því átaki lauk hefur Sight First verkefnið fjármagnið verið notað til að vinna gegn blindu, reisa augnsjúkrahús, veita meðferð vegna árblindu, þjálfað lækna og starfsfólk og hrundið af stað herferð gegn ungbarnablindu. Mörg önnur verkefni hafa verið unnin en of langt mál er upp að telja. Lesa meira
 

Félagar í Lionsklúbbi Hornafjarðar settu upp jólatréð við Hafnarkirkju

Það hefur verið árlegur viðburður hjá Lionsmönnum í Lionsklúbbi Hornafjarðar, frá stofnun klúbbsins 1966, að setja upp Lionsjólatréð, oftast við Hafnarkirkju. Eins og undanfarin ár þá settu félagarnir það upp við Hafnarkirkju, þ.e. laugardaginn 9 desember s.l. Þess má geta að fyrsta verkefni klúbbsins var vinna við að fullgera lóðina umhverfis nýbyggða kirkjuna. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga gaf jólatréð lengst af þessi fjörutíu ár en það er Skinney-Þinganes hefur gefið jólatréð undanfarin ár. Félagar Lionsklúbbsins hafa séð um uppsetninguna með góðri aðstoð kirkjuvarðanna. Síðustu árin hver það verið Örn Arnarson meðhjálpari sem, hefur haldið traustlega um framkvæmdina. Lesa meira
 

Lions gefur í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaði

Í gær (sunnudag) komu nokkrir félagar úr Lionsklúbbi Hornafjarðar á heilsugæslustöðina á Höfn og afhentu Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur hjúkrunarforstjóra 300.000 kr. í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaði fyrir heilsugæslustöðina. Unnsteinn Guðmundsson afhenti Guðrúnu gjafabréfið og sagði þetta afrakstur kútmagakvölds hjá þeim Lionsmönnum fyrir stuttu, þetta hefði verið svona ,,karlrembukvöld’’ hjá þeim. Guðrún þakkaði þeim félögum og öllum klúbbfélögunum þennan góða stuðning. Guðrún sagði að fleiri hefðu lagt þeim lið t.d.hefðu hjónin Halldóra Bergljót og Ágúst Þorbjörnsson gefið 250.000 kr, Útgerðarfélagið Sigurður Ólafsson 200.000 og Vís 75.000. Lesa meira
 

Lions : Fréttir

Lionsmenn

Kraftur í Lionsmönnum - 24.11.2008 Lions : Fréttir

Mikill kraftur er nú í Lionsklúbbi Hornafjarðar. Í síðasta mánuði gengu þrír nýir félagar í klúbbinn og á næstunni verða þrír til viðbótar teknir formlega inn. Þetta er nokkuð sérstakt því það er algengara nú um stundir að erfitt sé að halda lífinu í ýmsum félagasamtökum. Klúbburinn fékk enda sérstaka viðurkenningu frá Alþjóða Lionshreyfingunni á dögunum fyrir þróttmikið starf og fjölgun félaga. Líknarsjóður Lionsklúbbsins hefur ákveðið að styrkja kaup á útsendingarbúnaði í Hafnarkirkju. Búnaðurinn gerir m.a. því heimilisflóki á Hjúkrunarheimili HSSA sem ekki er ferðafært kleift að fylgjast með því sem fram fer í kirkjunni. Búnaðurinn gagnast einnig við athafnir þegar ekki komast allir sem vilja í kirkjuna. Lesa meira
 
Kútmagakvöld 2006

Sviðamessu fyrir alla í Pakkhúsinu - 13.11.2007 Lions : Fréttir

Á alþjóðaþingi Lionshreyfingarinnar 1925 skoraði Helen Keller á Lionsfélaga að þeir yrðu "Riddarar hinna blindu í krossför gegn myrkri." Lionshreyfingin tók áskoruninni og hóf að vinna að verkefninu. Sight First er verkfæri Lionshreyfingarinnar gegn blindu. Það var þróað af færustu sérfræðingum heimsins. Til að fjármagna þetta var árið 1991 hleypt af stokkunum Campaign Sight First verkefninu og var þá safnað á alþjóðavísu um 143 milljónum dollara sem með vöxtum fór í 200 milljónir dollara. Síðan því átaki lauk hefur Sight First verkefnið fjármagnið verið notað til að vinna gegn blindu, reisa augnsjúkrahús, veita meðferð vegna árblindu, þjálfað lækna og starfsfólk og hrundið af stað herferð gegn ungbarnablindu. Mörg önnur verkefni hafa verið unnin en of langt mál er upp að telja. Lesa meira
 
Uppsetning á Jólatré við Hafnarkirkju 2006

Félagar í Lionsklúbbi Hornafjarðar settu upp jólatréð við Hafnarkirkju - 18.12.2006 Lions : Fréttir

Það hefur verið árlegur viðburður hjá Lionsmönnum í Lionsklúbbi Hornafjarðar, frá stofnun klúbbsins 1966, að setja upp Lionsjólatréð, oftast við Hafnarkirkju. Eins og undanfarin ár þá settu félagarnir það upp við Hafnarkirkju, þ.e. laugardaginn 9 desember s.l. Þess má geta að fyrsta verkefni klúbbsins var vinna við að fullgera lóðina umhverfis nýbyggða kirkjuna. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga gaf jólatréð lengst af þessi fjörutíu ár en það er Skinney-Þinganes hefur gefið jólatréð undanfarin ár. Félagar Lionsklúbbsins hafa séð um uppsetninguna með góðri aðstoð kirkjuvarðanna. Síðustu árin hver það verið Örn Arnarson meðhjálpari sem, hefur haldið traustlega um framkvæmdina. Lesa meira
 
Lionsklúbbur Hornafjaðar gefur

Lions gefur í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaði - 20.03.2006 Mars

Í gær (sunnudag) komu nokkrir félagar úr Lionsklúbbi Hornafjarðar á heilsugæslustöðina á Höfn og afhentu Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur hjúkrunarforstjóra 300.000 kr. í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaði fyrir heilsugæslustöðina. Unnsteinn Guðmundsson afhenti Guðrúnu gjafabréfið og sagði þetta afrakstur kútmagakvölds hjá þeim Lionsmönnum fyrir stuttu, þetta hefði verið svona ,,karlrembukvöld’’ hjá þeim. Guðrún þakkaði þeim félögum og öllum klúbbfélögunum þennan góða stuðning. Guðrún sagði að fleiri hefðu lagt þeim lið t.d.hefðu hjónin Halldóra Bergljót og Ágúst Þorbjörnsson gefið 250.000 kr, Útgerðarfélagið Sigurður Ólafsson 200.000 og Vís 75.000. Lesa meira
 
Lionsklúbburinn gefur tvö hjartastuðtæki

Lionsklúbburinn gefur tvö hjartastuðtæki - 10.11.2005 Nóvember

Lionsklúbbur Hornafjarðar afhenti í gærkvöldi tvö hjartastuðtæki sem verða til staðar í Hafnar-sundlaug og Flosalaug í Öræfum. Guðbrandur Jóhannsson lýsti notkun þeirra og sagði það ótvírætt hafa sannað sig hversu góð öryggistæki þetta eru. Samaritan Pad tækin eru sjálfvirk, auðveld í notkun og íslenskt tal leiðbeinir jafnvel óreyndasta notanda gegnum endurlífgunarferilinn. Þetta eru tæki sem hentar að hafa í hvaða farartækjum sem er, á vinnustöðum, íþróttamiðstöðvum, í heimahúsum og nánast hvar sem fólk kemur saman. Hjartastuðtækið greinir ástand hjartans með aðstoð rafskauta sem límd eru á brjóstkassa sjúklingsins og getur greint hjartsláttartruflanir sem kallaðar eru skyndilegt hjartastopp. Ef svo er þá leiðbeinir tækið með tali og táknum gegnum hina einföldu notkun tækisins og gefur stuð sem leiðréttir hjartsláttartruflanir og kemur hjartanu aftur í réttan takt. Lesa meira
 
Reynir afhendir gjöfina góðu frá Lions

Lionsmenn færa Heppuskóla góða gjöf - 29.03.2004 Mars

Í morgun komu Lionsmenn á Hornafirði færandi hendi í Heppuskóla. Í farteskinu höfðu þeir átta hljómtækjasamstæður sem þeir færðu skólanum að gjöf. Formaður Lionsklúbbs Hornafjarðar Reynir Ólason afhenti skólanum gjöfina og sagði það von Lionsmanna að gjöfin kæmi að góðum notum. Guðmundur Ingi Sigbjörnsson skólastjóri Heppuskóla þakkaði fyrir höfðinglega gjöf og sagði m.a. að þau hljómflutningstæki sem hefðu verið til staðar í skólanum væru orðin gömul og lúin og uppfylltu ekki kröfur nútímans. Hljómflutningstækin verða sett upp í kennslustofum skólans. Lesa meira
 

 

Napóleon 2005 Lionsfundur 12. október 2005 Lions015 Stjórnarskipti 2005 til 2006
Þetta vefsvæði byggir á Eplica