Lions : Fréttir
Lionsklúbbur Hornafjaðar gefur

Lions gefur í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaði

Í gær (sunnudag) komu nokkrir félagar úr Lionsklúbbi Hornafjarðar á heilsugæslustöðina á Höfn og afhentu Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur hjúkrunarforstjóra 300.000 kr. í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaði fyrir heilsugæslustöðina. Unnsteinn Guðmundsson afhenti Guðrúnu gjafabréfið og sagði þetta afrakstur kútmagakvölds hjá þeim Lionsmönnum fyrir stuttu, þetta hefði verið svona ,,karlrembukvöld?? hjá þeim. Guðrún þakkaði þeim félögum og öllum klúbbfélögunum þennan góða stuðning. Guðrún sagði að fleiri hefðu lagt þeim lið t.d.hefðu hjónin Halldóra Bergljót og Ágúst Þorbjörnsson gefið 250.000 kr, Útgerðarfélagið Sigurður Ólafsson 200.000 og Vís 75.000.

Með þessum framlögum í söfnunina eru komnar 9.125.000. kr. en heildarkostnaður er rúmar ellefu millj.kr. svo nú vantar bara herslumuninn. Gangi dæmið upp kemur myndavélabúnaðurinn í lok maí og þá verða Hornfirðingar miklum mun betur settir með heilsugæslubúnað á staðnum.


Lions : Fréttir

Lionsklúbbur Hornafjaðar gefur
Lionsklúbbur Hornafjaðar gefur
Félagar í Lionsklúbbi Hornafjarðar afhentu Guðrúnu Júlíu 300 þúsund króna gjöf í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaði fyrir heilsugæslustöðina.

Lions gefur í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaði

20.03.2006

Í gær (sunnudag) komu nokkrir félagar úr Lionsklúbbi Hornafjarðar á heilsugæslustöðina á Höfn og afhentu Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur hjúkrunarforstjóra 300.000 kr. í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaði fyrir heilsugæslustöðina. Unnsteinn Guðmundsson afhenti Guðrúnu gjafabréfið og sagði þetta afrakstur kútmagakvölds hjá þeim Lionsmönnum fyrir stuttu, þetta hefði verið svona ,,karlrembukvöld?? hjá þeim. Guðrún þakkaði þeim félögum og öllum klúbbfélögunum þennan góða stuðning. Guðrún sagði að fleiri hefðu lagt þeim lið t.d.hefðu hjónin Halldóra Bergljót og Ágúst Þorbjörnsson gefið 250.000 kr, Útgerðarfélagið Sigurður Ólafsson 200.000 og Vís 75.000.

Með þessum framlögum í söfnunina eru komnar 9.125.000. kr. en heildarkostnaður er rúmar ellefu millj.kr. svo nú vantar bara herslumuninn. Gangi dæmið upp kemur myndavélabúnaðurinn í lok maí og þá verða Hornfirðingar miklum mun betur settir með heilsugæslubúnað á staðnum.

Senda grein

 

Napóleon 2005 Lionsfundur 12. október 2005 Lions015 Stjórnarskipti 2005 til 2006
Þetta vefsvæði byggir á Eplica