Röskun á starfsemi bókasafns
Viðskiptavinir bókasafnsins athugið. Frá og með föstudeginum 26. mars verður bókasafnskerfi almenningsbókasafna lokað vegna yfirfærslu á nýju landskerfi bókasafna, Gegni. Nýja kerfið verður komið í gagnið mánudaginn 5. apríl.
Safnið verður opið með lágmarksþjónustu þennan tíma. Þess vegna eru lánþega hvattir til að taka sér bækur að láni fyrir þennan tíma. Einnig er vakin athygli á að dagana 22.-25. mars verða sektarlausir dagar á safninu og er fólk hvatt til að notfæra sér það og skila sem mestu af bókum.
Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þessu.



