Góð aðsókn á Auður Austurlands
Sýningin Auður Austurlands, sem er sýning á handverki og listiðnaði úr austfirsku hráefni var opnuð í húsnæði Jöklasýningarinnar á Höfn 12. janúar og er opin til 18. jan. Fjöldi muna á sýningunni er 71 samkvæmt sýningaskrá, flestir eru gripirnir unnir úr hreindýrs horni, hreindýrs skinni, hrosshári og lerki. Eini Hornfirðingurinn sem tók þátt í sýningunni er handverksmaðurinn Ragnar Arason sem er með renndar undirskálar úr lerki, notaðar undir expresso og capucino leirbolla.
Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar hefur aðsókn verið mjög góð og hafa á þriðja hundrað manns komið á sýninguna.



