Jónas Ingimundarson píanóleikari í Nýheimum
Sunnudaginn 26. febrúar n.k. heldur Jónas Ingimundarson einleikstónleika í Nýheimum. Efnisskráin er fjölbreytt, Mozart, Schumann og Bhrams svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru tímamót í spilamennsku Jónasar Ingimundarsonar, en 40 ár eru liðin frá því að fór að koma fram sem einleikari. Jónas vígði konsertflygilinn í Nýheimum, og er því nokkur eftirvænting að fá að hlýða á þá vini taka lagið. Jónas Ingimundarson stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Jónas hefur síðan starfað sem píanóleikari, tónlistarkennari og kórstjóri. Hann hefur haldið fjölda tónleika á Íslandi og komið fram víða í Evrópu og Bandaríkjunum, ýmist einn eða með öðrum, einkum söngvurum. Jónas hefur leikið inn á fjölda hljómplatna og hljómdiska og hefur staðið fyrir öflugu tónlistarkynningarstarfi í tengslum við tónleikahald sitt.
Jónas hefur fengið listamannalaun og notið starfslauna listamanna og hlotið margvíslegar viðurkenningar, svo sem heiðursverðlaun VÍS, Íslandsbanka og DV og heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna 2001, þegar þau voru veitt í fyrsta sinn. Jónas Ingimundarson var sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1994 og Dannebrog orðunni árið 1996. Árið 2004 var Jónas valinn heiðurslistamaður Kópavogs. Jónas er tónlistarráðunautur Kópavogs.
Tónleikarnir hefjast kl. 16.00 og aðgangseyrir er kr. 1500.- og nemendur Tónskólans fá frítt inn.



