M:orðið í Bókasafninu
Hvað gengur eiginlega á í Bókasafninu? Það lítur út fyrir að morð hafi verið framið, rannsókn stendur yfir en lögreglan verst allra frétta. Ljóst þykir að voðaverk hafi verið framið og þögn lögreglu hefur orðið til þess að ýmsar getgátur eru á lofti. Hver var myrtur, hver framdi ódæðisverkið og hver var ástæðan? Og síðast en ekki síst ? hver er Stella Blómkvist og hvernig tengist hún þessu máli? Þessum spurningum og fleirum verður ekki svarað fyrr en á mánudagskvöld - komdu á Bókasafnið klukkan 18 og hjálpaðu til við að leysa þetta flókna og óvenjulega sakamál.
kveðja
Glæpahneigðu bókaverðirnir



