Gestagangur á Hala yfir jól og áramót
Gistiheimilið á Hala er opið allt árið og í vetur hefur verið töluverður gestagangur. Frá því um 20 desember eru skráðar um 50 gistinætur á Hala fyrir utan vini og vandamenn sem hafa verið í heimsókn.Það eru nær eingöngu erlendir ferðamenn sem leita eftir gistingu á þessum tíma. Á aðfangadagskvöld var fjögurra manna frönsk fjölskylda í dvöl á Hala, þau komu reyndar matarlaus, áttuðu sig ekki á að verslanir og veitingastaðir væru lokuð yfir jólin Þau urðu einnig fyrir þeirri leiðinlegu reynslu að tapa ferðatöskunum sínum á Heathrow flugvelli og voru farangurslaus að ferðast um Ísland yfir jólahátíðirnar, síðast fréttist af þeim í Húnavatnssýslu, þá voru þau búin að fara austur á Egilsstaði, heimsækja Mývatn í hríðarbyl og aka áfram um Norðurland án þess að fá farangurinn sinn eða föt til skiptanna, hvað þá jólagjafirnar. Virtust þau taka þessu af miklu æðruleysi og án efa hafa þetta verið eftirminnileg jól.
Þeir sem hafa heimsótt Hala yfir jól og áramót hafa verið af mörgum þjóðernum m.a. frá Bretlandi, Þýskalandi, Belgíu, Rússlandi, og Litháen svo eitthvað sé nefnt. Allir þessir ferðalangar hafa skoðað sýningar í Þórbergssetri undir leiðsögn heimamanna og óspart hefur verið höfðað til íslenskrar matarmenningar, hangikjöt og laufabrauð verið á borðum auk lambalæris, bleikjuafurða og ýmissa heimagerðra rétta. Þrátt fyrir gestagang hefur hann ekki truflað mikið jólahald heimamanna enda öll aðstaða fyrir gesti að búa út af fyrir sig í gistihúsunum yfir jólahátíðina sjálfa og alltaf verið að stússast í matargerð hvort sem er.. Mikið er spurt um norðurljósin, allir heimsækja Jökulsárlón og Skaftafell og ljóst að ,,Ríki Vatnajökuls? hefur mikið aðdráttarafl fyrir erlenda ferðamenn á veturna. Veðurfar var þó frekar leiðinlegt eftir áramótin og þýsk hjón sem dvöldu í fimm daga á nýju ári sáu varla sól á himni að deginum, og því síður stjörnur eða norðurljós og voru það mikil vonbrigði. Síðastliðna nótt stilltu tveir ferðalangar frá Japan stofusófanum upp fyrir framan stóran stofuglugga sem vísar í norður, slökktu öll ljós og fylgdust með himinhvolfinu fram eftir kvöldi, en allt kom fyrir ekki.
Gistiheimilið á Hala er opið í allan vetur, og einnig er tekið á móti gestum í morgunmat og kvöldmat ef pantað er fyrir fram. Það er kjörið fyrir litla hópa að bregða sér í sveitina t.d. yfir helgi og njóta útiveru og friðsemdar. Hægt er að panta sérstaka dagskrá í Þórbergssetri, eða koma með eigið skemmtiefni og nýta aðstöðuna þar. Sjá nánar á www.thorbergur.is. Ýmsir viðburðir eru fyrirhugaðir í Þórbergssetri, einkum þegar líða fer á þorra og verða þeir auglýstir síðar.



