Vortónleikar Karlakórsins Jökuls
Karlakórinn Jökull heldur sína árlegu vortónleika á sumardaginn fyrsta næstkomandi, sungin verða þekkt karlakórslög í gömlum og nýjum útsetningum. Á þessu ári heldur kórinn upp á 35 ára afmæli sitt.
Á bændafundi árið 1972 var ákveðið að stofna karlakór með þátttöku manna úr sem flestum hreppum Austur-Skaftafellssýslu. Æfingar hófust 4. janúar 1973 og hefur Karlakórinn Jökull starfað óslitið síðan. Sigjón Bjarnason frá Brekkubæ var fyrsti stjórnandi kórsins. Hann hélt um tónsprotann í tuttugu ár, eða til ársins 1992. Þá tók núverandi kórstjóri, Jóhann Morávek við stjórn karlakórsins Jökuls. Guðlaug Hestnes hefur gegnt starfi undirleikara kórsins frá árinu 1975 eða um 33 ára skeið. Karlakórinn Jökull hefur haldið tónleika víða um land, á Norðurlöndunum og á Ítalíu. Kórinn er einn af stofnendum Kötlu, Sambands sunnlenskra karlakóra og hefur tekið þátt í öllum mótum þess. Karlakórinn Jökull hefur komið sex sinnum fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands og var raunar fyrsti áhugamannakórinn sem söng með hljómsveitinni. Kórinn hefur gefið út þrjá geisladiska, "Í jöklanna skjóli", "Það kom söngfugl að sunnan" og nú síðast jóladiskinn "Hvít er borg og bær".
Karlakórinn Jökull fer í tónleika ferð um suðurland á næstu dögum eða 2 - 4 maí, sungið verður í Leikskálum í Vík föstudagskvöldið 2. maí kl. 20 og í Hvoli á Hvolsvelli laugardaginn 3. maí kl. 16 og endurgjalda þar með ferð Karlakórs Rangæinga til okkar í fyrra.
Vortónleikar Karlakórsins Jökuls verða í Hafnarkirkju kl. 20 á sumardaginn fyrsta fimmtudaginn 24 apríl, miðaverð er kr. 1500.
Undirleikari er Guðlaug Hestnes og stjórnandi er Jóhann Morávek



