Fyrsta ferð sumarsins
Nú er barnastarfið hafið og við fórum í fyrstu ferð sumarsins í dag, sem var fuglaskoðun í Óslandi. Ferðin var fjölmenn, en alls mættu 19 sprækir krakkar. Við sáum meðal annars Kríu, Skúm og Æðakollur með ungana sína og borðuðum svo nesti. Næsta ferð er 24. júní og það er Vitaferð í Hvalnes. Minnum á að skráning í ferðirnar fer fram á bókasafninu, eða í síma 4708050. Hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Menningamiðstöðvar



