Lúruveiði með barnastarf Menningarmiðstöðvar
Í þessari viku fóru krakkarnir í barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar í Lúruveiði. Farið var á bátum austan við Ægisíðuna og veitt í net. Krakkarnir Hjálpuðu þeim Bjössa og Gísla Karli að draga inn netið og taka Lúruna úr því og það var rosa fjör að fá að taka þátt í því, enda nóg af Lúru sem kom í netin. Á leiðinni heim var tekin smá útúrdúr og fuglalífið skoðað ásamt því að skipstjórinn sá til þess að allir blotnuðu, sumir blotnuðu alveg í gegn.
Þegar í land var komið var aflanum skipt á milli allra krakkanna og fengu þau einnig herta Lúru í gjöf frá Gísla Karli.



