Síðasta ferð sumarsins í barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar
Þá er barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar lokið í sumar, en það endaði með frábærri óvissuferð. Byrjað var á því að skoða kúabúið í Flatey, þar sem að Friðrik og félagar tóku á móti okkur og sýndu okkur hvernig fjós með sjálfvirku mjaltakerfi virka, en þar ganga kýrnar lausar á milli mjaltasvæðis, legusvæðis og átsvæðis. Eftir vel heppnaða heimsókn á kúabúið var svo farið í Eskey þar sem grillaðar voru pylsur og farið var í Kubb. Til þess að toppa svo ferðina fengu krakkarnir Jöklaís hjá Sigurlaugu og Jóni á Brunnhól.
Við viljum þakka ungmennafélaginu Sindra fyrir samstarfið í sumar og öllum þeim aðilum sem lögðu fram hjálparhönd. Krakkarnir fá að sjálfsögðu hrós fyrir frábæra mætingu í barnastarfið og við hlökkum til að sjá ykkur sem flest á næsta ári.



