Málþing um Einar Braga rithöfund og atómskáldin
Haldið í Þórbergssetri 18. - 19. október næstkomandi.
Málþingið verður haldið 18. - 19. október n.k. í Þórbergssetri og hefst kl. 14:00 á laugardegi. Verða fjölmargir áhugaverðir fyrirlestrar um lífsstarf Einars Braga út frá ýmsum sjónarhornum, sem og um þann hóp skálda sem hann er iðulega kenndur við: Atómskáldin. Meðal fyrirlesara verða rithöfundar, bókmenntafræðingar og MA nemar við Háskóla Íslands. Dagskráin verður kynnt síðar.
Lesið verður úr bókum Einars Braga, en einnig farið í heimsókn að Steinum og á Sléttaleiti og skoðaðar búsetuminjar. Einar skrifaði þrjár bækur með fróðleik um Suðursveit undir heitinu, Þá varöldin önnur, þar er m.a. fjallað um búskaparhætti á Sléttaleiti á fjórða áratug síðustu aldar. Þar bjó þá Sveinn Einarsson móðurbróðir Einars, en Einar dvaldi hjá þeim hjónum á Sléttaleiti um tíma.
Guðrún Sveinsdóttir frá Sléttaleiti endurbyggði bæjarhúsin á Sléttaleiti í minningu foreldra sinna og ánafnaði síðan Rithöfundasambandi Íslands húsið til minningar um Einar Braga. Þar eru ýmsar minjar sem tengjast skáldinu og verkum hans sem gaman er að skoða. Áður hafði Einar Bragi haft forgöngu um að endurbyggja smiðjuna á Sléttaleiti til að framfylgja heiti Sveins, smiðjan gæti verið að grunni til sú sama og Ingimundur Þorsteinsson forfaðir Kvískerjabræðra byggði þar, en hann flutti bæinn frá Steinum að Sléttaleiti árið 1829 eftir stórflóð og grjóthrun úr
fjallinu.
Um kvöldið verður hátíðarkvöldverður í Þórbergssetri. Á sunnudeginum heldur dagskrá áfram til kl. 15:00.
Haustþing Þórbergsseturs eru nú árlegur viðburður og hefur alltaf verið góð aðsókn. það er von okkar að sem flestir leggi leið sína í Suðursveit þessa helgi til að njóta skemmtunar, fróðleiks og útiveru.
Hægt verður að fá gistingu á Hala, hali@hali.is, sími 478 1073, á Gerði sími 478 1905 og á Smyrlabjörgum sími 478 1074.
Nánari upplýsingar um málþingið veitir Soffía Auður Birgisdóttir, verkefnastjóri á Háskólasetrinu á Höfn. Sími 4708042 og 8482003. Netfang: soffiab@hi.is
Allir velkomnir.



