Upplestur rithöfunda í Pakkhúsinu
Hinn árlegi upplestur rithöfunda í Pakkhúsinu verður á morgun miðvikudag 3. desember kl. 20:00.
Alls eru það sex rithöfundar sem heimsækja okkur í þetta skipti en þeir eru barnabókahöfundurinn Sigrún Eldjárn sem les úr bók sinni "Eyja sólfuglsins", ljóðskáldið Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir með ljóðabók sína "Loftnet klóra himin", Jóna Á. Gísladóttir með bók sína "Sá einhverfi og við hin", Þorvaldur Kristinsson les úr ævisögunni "Lárus Pálsson leikari", Guðmundur Andri Thorsson les úr skáldsögunni "Segðu mömmu að mér líði vel" og Sjón les úr bók sinni "Rökkurbýsnir".
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Kaffi og piparkökur í boði ásamt tónlistar atriði frá Tónskólanum.
Rithöfundarnir verða svo á ferð um bæinn á fimmtudag og lesa fyrir grunnskólanemendur og heimsækja aldraða á Hjúkrunarheimilið. Í hádeginu á fimmtudag verður einnig lesið úr völdum bókum í Nýheimum.


