Húsnæði til varðveislu sögulegra muna
Menningarmiðstöðin er búin að fá afhent þjónustuhúsnæði að Álaleiru 1. Húsnæðið er ætlað til varðveislu á mununum frá meðal annars Byggðasafni og Listasafni. Safnvörður Byggðasafnsins verður með skrifstofuaðstöðu í húsnæðinu. Hjalti Vignisson bæjarstjóri tók við lyklum af húsinu úr höndum þeirra Páls Guðmundssonar og Dagnýjar Rögnvaldsdóttur á mánudeginum 12. janúar . Húsið var tekið í notkun laugardaginn 17. janúar, þar sem að málverk eftir Bjarna Henriksson var hengt upp. Þjónustuhúsnæðið er gjörbylting í safnamálum á Hornafirði og tryggir að vel muni fara um sögulega muni og listaverk .


