Opnun áhugamannaljósmyndasýningar
Áhugamannaljósmyndasýning var opnuð í Pakkhúsinu á laugardaginn var. Heimamenn fjölmenntu á opnunina enda voru um 39 ljósmyndarar sem sendu inn myndir á sýninguna. Ekkert sérstakt þema var í gangi, né aldurstakmark, svo að myndirnar eru mjög fjölbreytilegar. Þess má geta að yngsti ljósmyndarinn sem sendi inn mynd er einungis 5 ára. Sigurður Mar ljósmyndari hjálpaði til við valið á myndunum, en þátttakendur voru mjög duglegir að senda inn því rúmlega 400 myndir voru komnar þegar skilafrestur rann út 30. janúar. Allir þeir sem taka þátt eiga hið minnsta 2 myndir á sýningunni en 340 urðu fyrir valinu. 27 myndir voru hengdar upp í ramma en hinum 313 myndunum er varpað upp með skjávarpa. Sýningin verður opin næstu 3 vikurnar svo að Hornfirðingar hafa næg tækifæri til að koma og skoða sýninguna.
Miðvikudaginn 18. febrúar verður sýningin opin frá 20-22 og eru allir velkomnir að kíkja við og skoða myndirnar, heitt verður á könnunni.
Fimmtudaginn 19. febrúar verður svo kaffihúsakvöld í Pakkhúsinu þar sem að sýningin verður formlega opnuð og boðið verður upp á léttar veitingar. Húsið opnar klukkan 20:00.
Áhugamannaljósmyndasýningin verður opin eins og hér segir:
Miðvikudagurinn 18. febrúar klukkan 20-22
Fimmtudagurinn 19. febrúar klukkan 20 KAFFIHÚSAKVÖLD
Laugardagurinn 21. febrúar klukkan 14-16
Sunnudagurinn 22. febrúar klukkan 14-16
Fimmtudagurinn 26. febrúar klukkan 20-22
Laugardagurinn 28. febrúar klukkan 14-16
Sunnudagurinn 1. mars klukkan 14-16
Miðvikudagurinn 4. mars klukkan 14-16



