Einstakur menningarviðburður í Suðursveit
Þórbergssetur stendur fyrir tónleikum í Kálfafellsstaðarkirkju á Ólafsmessu 29. júlí ásamt sóknarpresti Séra Einari G . Jónssyni. Dagskráin hefst með helgistund klukkan 14:00. Fjallað verður um sögu kirkjunnar og staðarins og rifjuð upp gömul saga um mátt Ólafs helga, en kirkjan var helguð honum í kaþólskum sið.
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og konsertmeistari Sinfoníuhljómsveitar Íslands og Peter Máté píanóleikari verða síðan með tónleika í kirkjunni. Á dagskránni eru einleikslög eftir Bach, vinsæl og þekkt íslensk lög ásamt sígauna- og vínartónlist. Kálfafellstaðarkirkja er ágætis tónleikahús með góðum hljómburði og því er það mikið tilhlökkunarefni að fá svo færa listamenn í heimsókn Í lok dagskrár verður farið í heimsókn að völvuleiði í landi Kálfafellsstaðar oggömul saga um Völvuna á Kálfafellsstað og mátt hennar rifjuð upp.
Ferðamenn sem eiga leið um Suðursveit á þessum tíma ættu ekki að láta þennan merka listviðburð framhjá sér fara. Gömul helgisaga, þjóðtrú, klassísk tónlist og útivera, menning og saga, trú og veruleiki, það að koma í Suðursveitina eina dagstund og njóta þessa alls er nýstárleg upplifun.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Austurlands og Þórbergssetri.



