Annað námskeið verkefnisins Evrópa unga fólksins er um helgina
Langar þig að hafa áhrif á samfélagið sem þú býrð í?
Nú um síðustu helgi hófst verkefnið Evrópa unga fólksins. Markmið verkefnisins er að efla sjálfstraust fólks til að geta tekið þátt í umræðum um stöðu mála og getu til að hafa áhrif á samfélagið, stjórnendur og svo framvegis og aðalmarkmiðið er að efla ungt fólk á aldrinum 13 til 30 ára til þátttöku í mótun samfélagsins okkar.
Fyrsta helgin gekk út á einstaklinginn og rödd hans. Námskeiðið fór að miklu leyti fram með vinnu í gegnum leik, hópefli og samvinnu.
Næsta námskeið er um helgina ( 27. til 28. nóvember) og langar okkur að vekja athygli fleiri einstaklinga á aldrinum 13 til 30 ára á því. Kostnaðurinn er enginn og skemmtunin mikil.
Að þessu sinni verður farið í styrk hvers einstaklings innan hópsins, unnið með frumkvæði, hlustun, jákvæðni og skapandi hugsun.
Leynileikhúsið heldur utan um námskeiðin og tekur vel á móti öllum áhugasömum einstaklingum. Námskeiðin verða fjögur í það heila. Í desember verður tekin pása, en í janúar verður farið á fullt aftur og verða þá síðustu tvö námskeiðin aðra og þriðju helgina í janúar, eða helgina 8. til 9. janúar og 15. til 16. janúar.
Á þriðja námskeiðinu mun vinnan beinast að samfélaginu. Skapandi hugsun og hugræn tengsl koma hópnum í gang með draumasamfélagið sem einstaklingar sjá fyrir sér að þeir vilji búa í.
Á fjórða og síðasta námskeiðinu verður Draumasamfélagið prufað í hlutverkaleik. Vinna skoðuð út frá raunhæfum sjómarmiðum og yfirlýsing unnin fyrir bæjarfélagið og aðra sem málið varðar.
Leikur og skemmtun eru lykilorðin í þessari vinnu og samvinna og þátttaka vonandi afurðin auk betra samfélags sem þátttakendur munu fá út úr þessu námskeiði.
Námskeiðin hefjast klukkan 10:00 á morgnanna í Nýheimum og eru til 14:00 á daginn, laugardaga og sunnudaga.
Þetta er skemmtilegt, nytsamlegt og fræðandi en samt mest skemmtilegt :)
Ef þið hafið áhuga á þessu námskeiði er skráning í síma 4708057begin_of_the_skype_highlighting 4708057 end_of_the_skype_highlighting eða þið getið sent póst á gudlaugp@hornafjordur.is



