Fimmtudaginn 12. janúar n.k. kl. 16.10 munu Handverk og hönnun, Menningarráð Austurlands með stuðningi Þróunarfélags Austurlands og Markaðsstofu Austurlands opna sýninguna „Auður Austurlands" í húsnæði Jöklasýningarinnar. Á sýningunni verða fjölbreyttir munir unnir úr hráefni sem tengist Austurlandi þ. e. hreindýraskinni, hreindýrshorni og beini, lerki og líparíti. Sýndir verða munir frá tuttugu og sex aðilum. Sýnendur eru: Álfasteinn, Ásta Sigfúsdóttir, Dröfn Guðmundsdóttir, Dýrfinna Torfadóttir, George Hollanders, Guðmundur Magnússon, Guðmundur Sigurðsson, Guðný Hafsteinsdóttir, Guðrún Steingrímsdóttir, Fjölnir Björn Hlynsson, Hólmfríður Ófeigsdóttir, Jórunn Dóra Sigurjónsdóttir, Kristbjörg Guðmundsdóttir, Lára Gunnarsdóttir, Listiðjan Eik, Ólavía Sigmarsdóttir, Páll Kristjánsson, Philippe Ricart, Reynir Sveinsson, Rita Freyja Bach, Signý Ormarsdóttir, Sigurður Már Helgason, Úlfar Sveinbjörnsson, Þórey S. Jónsdóttir, Þórhallur Árnason og Þórólfur Antonsson.
Lesa meira