Beint í leiðarkerfi vefsins.
Eldri borgarar sem sækja Dagvist aldraðra gerðu á dögunum lampa og luktir í mósaík stíl. Alls eru laparnir níu talsins og luktirnar fjórar og eru þessir munir fagurlega skreyttir með marglitu gleri.
Lesa meira
Árlegur upplestur rithöfunda verður í Pakkhúsinu í kvöld þriðjudaginn 29. nóvember klukkan 20:00. Alls eru átta rithöfundar sem heimsækja okkur í þetta sinn.
Lesa meira
Farið verður í Lúruveiði í dag, 18.júní klukkan 13:00. Mæting er niður á smábátabryggju með nesti og góða skapið. Muna að skrá sig á Bókasafninu í síma 4708050.
Lesa meiraFarið var í fuglaskoðunarferð í dag með Bjössa, í Ósland. Kríuungar voru merktir og heil ógrynni af Lúpínu tínd.
Lesa meira„Lífið á sjónum og vinnan í landi“
Lesa meiraBarnastarfið hefst með fuglaskoðunarferð í Ósland, þriðjudaginn 11.júní. Mæting á Bókasafnið klukkan 13:00. Börn frá 7 ára aldri eru velkomin í ferðirnar en þeir sem eru yngri en 7 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum. Aðgangseyri 500 krónur og gott er að taka með sér nesti og klæða sig eftir veðri.
Lesa meiraVerkið heitir Samtal og er málað 2012. Verkið er hluti af stórri seríu og var hluti af sýningu sem haldin var í desember 2012 sem hét „Á besta aldri“.
Lesa meira
Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.
Lesa meira
Sunnudaginn 17. mars næstkomandi verður dagskrá í Þórbergssetri helguð 125. afmælisdegi Þórbergs Þórðarsonar.
Lesa meira
Hljómsveitin Skálmöld verður með tónleika í Sindrabæ í kvöld klukkan 21:00. Sveitin lagði af stað í Íslandstúr sem nefnist Myrkur, Kuldi, ís og snjór 2013, í lok febrúar og er nú þegar búin að spila á 6 stöðum um landið.
Lesa meira
Eins og hornfirðingar vita hafa stofnanir innan Nýheima lengi boðið upp á ýmsa viðburði í hádeginu á föstudögum og skapast fyrir því hefð í gegnum árin að á hverjum föstudegi séu fjölbreyttir viðburðir í boði sem endurspegla starfið sem fer fram í Nýheimum.
Lesa meira
Humarhátíð 2013 verður 28.-30. júní, undirbúningur fyrir hátíðna er nú þegar hafinn. Vonir standa til að brottfluttir og íbúar Hornafjarðar eigi eftir að skemmta sér og sínum saman þessa helgi. Án þess að uppljóstra frá nýju þema og uppákomum sem verða að þessu sinni þá má greina frá að áhersla verður lögð á humarinn í ár.
Áhugaljósmyndasýningin sem stóð yfir utan á Listasafni er lokið. Sýningin gekk í desember og janúar á meðan á mesta skammdeginu stóð og nutu myndirnar sín vel í myrkrinu.
Lesa meira
Þann 18. febrúar hefst spennandi dansnámskeið fyrir alla aldurshópa í Sindrabæ og Mánagarði. kenndur verður nútímadans, jazzballet og skapandi dans.
Lesa meiraMálverkið sem er til sýnis á veggnum næsta mánuðinn er eftir Bjarna Guðmundsson listmálara. Bjarni fæddist að Papósi árið 1885 og byrjaði að mála fyrir alvöru eftir að hann varð þrítugur, einkum eftir 1952 málaði hann mikið, myndir frá Höfn og landslagsmyndir víða úr sýslunni.
Lesa meira
Hafin er söfnun mynda af öllum fiskiskipum, stórum sem smáum, sem gerð hafa verið út frá Hornafirði. Einnig er leitað eftir myndum sem varpa ljósi á líf og starf sjómanna á hafi úti.
Lesa meira
Þær Jóna Benný, Regína og Soffía Auður eru komnar áfram í 16 liða úrslit í Útsvarinu.
Lesa meiraNæstu vikur eiga Hornfirðingar og sér í lagi Hafnarbúar eftir að verða varir við Lettneska listhópinn The Swufu's. Hópurinn dvelur við æfingar í tvær vikur og er koma þeirra hluti verkefnis Keðju sem sveitarfélagið tekur þátt í. Á Íslandi eru það Egilsstaðir og Hornafjörður sem eru þátttakendur í verkefninu.
Á morgun föstudag klukkan 16:00 opnar ný sýning í fremra rými Listasafns Hornafjarðar og ber hún heitið Svalbard At the Ice Edge.
Lesa meira
Sýning áhugaljósmyndara hefur verið sett upp í þriðja sinn, en að þessu sinni er hún utan dyra eins og margir hafa eflaust tekið eftir.
Lesa meira
Þann 5. desember næstkomandi klukkan 20:30 verður hin árlega bóka og rithöfunda kynning í Pakkhúsinu.
Lesa meira
Meðlimir dagvistar fóru á myndlistarnámskeið hjá Gingó á dögunum og afrakstur námskeiðsins má nú sjá hanga á veggnum mínum
Lesa meiraJólaljósin verða tendruð við hátíðlega athöfn sunnudaginn 2. desember kl.17:00 við sundlaugina.
Von er á góðum gestum með rauðar skothúfur og er ekki að efa að það verður mikið fjör.
Lesa meira
Jónas Sigurðsson og Ómar Guðjónsson lögðu saman land undir fót núna í nóvember og ætlunarverkið var að halda 14 tónleika á 14 dögum.
Lesa meira
Áhugaljósmyndasýning hefst í þriðja sinn þann 7. desember næstkomandi og mun standa út janúar.
Sýningin verður með breyttu sniði í ár en myndunum verður varpað upp með skjávarpa utandyra
Lesa meira
Á föstudaginn síðasta fóru fram útslit í Smásagna ljóðkeppni Grunnskóla Hornafjarðar og Menningarmiðstöðvar. Keppnin er haldin þann 16. nóvember ár hvert í tilefni að Degi Íslenskrar tungu.
Lesa meira
Áhugaljósmyndasýning verður haldin í þriðja sinn í desember en að þessu sinni fer hún fram utan dyra. Myndunum varpað upp með skjávarpa á Ráðhúsið. Sýningin opnar þann 7. desember og mun hún standa fram í febrúar. Þemað í ár er Landið og Fólkið.
Lesa meira
Norræna bókasafnavikan er stærsta sameiginlega menningardagskrá á Norðurlöndunum. Í viku er boðið upp á upplestra, sýningar, umræður og aðra menningaratburði á þúsundum bókasafna og annarra samkomustaða.
Lesa meiraNorræni skjaladagurinn er 10. nóvember í ár. Þema dagsins að þessu sinni er „Íþrótta og æskulýðsstarf á 20. öld“. Haldið er upp á daginn um land allt og Í tilefni af honum verður sett upp sýning á Bókasafninu með myndum
Lesa meira
Safnahelgin er stærsti sameiginlegi Menningarviðburðurinn á suðurlandinu og nær hann frá Ölfusi allt til Hornafjarðar.
Lesa meira
Hljómsveitina Valdimar þekkja allir landsmenn orðið vel enda búnir að vera að gera það gott eftir að fyrsta plata þeirra Undraland kom út árið 2010.
Lesa meira
Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sækir okkur Hornfirðinga heim fjórða veturinn í röð og býður okkur upp í dans
Lesa meira
Í dag opnar ný sýning á Bókasafni og í fremra rými Listasafns Hornafjarðar úr Náttúrugripasafni Gömlubúðar.
Þessa mynd gaf Bjarni Henriksson, móður Svövu Kristbjargar, Sigrúnu Eiríksdóttur. Faðir hennar, Guðmundur Jónsson gaf henni svo myndina.
Lesa meira
Yfirgripsmikil sýning á verkum Svavars Guðnasonar er nú til sýnis í Cobra-safninu í Hollandi, en Svavar var einn af forsprökkum Cobra-hópsins og frumkvöðull abstrakt málverksins á Íslandi.
Lesa meira
Hornfirska Skemmtifélagið frumsýndi síðasta laugardag haustsýninguna Eitt lag enn við frábærar undirtektir.
Lesa meira
Helgina 2. - 4. nóvember verður Safnahelgi á Suðurlandi haldin hátíðleg í 5. sinn. Safnahelgin er stærsti sameiginlegi Menningarviðburðurinn á suðurlandinu og nær hann frá Ölfusi allt til Hornafjarðar.
Lesa meira
Tvítyngi – auður fyrir einstakling og samfélag.
Það er ávinningur fyrir sérhvern einstakling að hafa vald á mörgum tungumálum
og fjöltyngdir einstaklingar eru afar verðmætir fyrir samfélagið. Þegar fjölskyldur
flytjast milli landa er auðveldara fyrir þær að halda tengslum við heimaland sitt.
ef þær viðhalda móðurmálinu.
Lesa meira
Vel heppnuð og vel sótt afmælisráðstefna Nýheima og FAS um mennta og menningamál var haldin í fyrirlestrasal Nýheima. Í upphafi ráðstefnunnar var undirrituð viljayfirlýsing um eflingu á starfi Nýheima á sviði menningar, menntunar, rannsókna og nýsköpunar.
Lesa meira
Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.
Lesa meira
Laugardaginn 29. september munu flest félagasamtök í sýslunni kynna starfsemi sína fyrir gestum og gangangi í Nýheimum frá klukkan 13:00 til 16:00.
Lesa meiraÁ fimmtudaginn næsta verður uppskeruhátíð Sumarlesturs Bókasafnsins og Barnastarfs Menningarmiðstöðvar í Nýheimum klukkan 15:00.
Lesa meiraÍ október opnar sýning á verkum Svavars Guðnasonar í Cobra safninu í Amstelveen í Hollandi. Sýningin er samvinnuverkefni Listasafns Íslands, Carl-Henning Pedersen og Else Alfelts safnsins, Skovhuset safnsins (bæði í Danmörku) og Cobra safnsins.
Lesa meiraVegginn prýðir að þessu sinni olíumálverk af Höfn eftir Skarphéðinn Þorkelsson sem var héraðslæknir á Höfn 1943-1950, en það ár lest hann skyndilega aðeins 38 ára gamall.
Lesa meira
Tuttugasti og fyrsti árgngur héraðsritsins Skaftfellings er komið út. Ritið flytur að vanda fjölbreytt efni úr Austur-Skaftafellssýslu, bæði nýtt og gamalt.
Lesa meiraÁ þriðjudaginn var síðasta ferð í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar þetta sumarið, en það er óvissuferðin. Farið var í ratleik um bæinn í grenjandi rigningu en krakkarnir létu það ekki stoppa sig í leit að vísbendingum
Lesa meira
Síðastliðinn þriðjudag var haldið að Miðskeri í Nesjum, tilgangur ferðarinnar var að skoða svínabúið.
Lesa meira
Á þriðjudaginn var farið með 15 krakka í hellaskoðun í Viðborðshraunum á Mýrum í góðu veðri. Í Viðborðshraunum eru þó nokkrir hellar og nokkrir þeirra hafa verið notaðir sem fjárhús í gegnum tíðina og einn þeirra sem mannabústaður
Lesa meira
Rauða Kross búðin við Víkurbraut er opin á mánudögum frá klukkan 17:00 til 19:00. Allur ágóði af sölu rennur óskiptur til Rauða Krossins. Athugið að búðin fer í sumarfrí eftir mánudaginn 9. júlí
Lesa meiraÁ þriðjudaginn var farið í fuglaskoðunarferð í Óslandið með Bjössa Arnar fuglaáhugamanni með meiru.
Lesa meiraÍ gær fóru krakkarnir í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar í siglingu um Hornafjörðinn með Fúsa í Hornafjörður Bay Cruise.
Lesa meira
Á Humarhátíð verður opið í Skreiðarskemmunni 13-21 og þar gefur að líta verkefni sem kallað er Skreiðarskemman – sjóminjasafn í vexti.
Lesa meira
Búið er að opna sýningu í Nýheimum og Miðbæ, á verkum eftir félagsmenn Bútasaumsfélagsins Ræmanna.
Lesa meira
Laugardaginn 16. júní kl. 14:00 verður ljósmyndasýningin ,,Óþrotlegur auður“ opnuð í Þórbergssetri.
Myndlistarsýningin Bland á striga opnar á Hótel Jökli Nesjum laugardaginn 16. júní kl 14:00. Sýningin mun standa fram eftir sumri og eru allir velkomnir.
Lesa meiraSíðast liðinn þriðjudag var fyrsta ferð sumarsins í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar. Farið var í plöntuskoðunarferð í tilefni af degi hinna villtu blóma sem haldinn er þann 17. júní ár hvert.
Lesa meira
Sögusýning um Svavar Guðnason listmálara sem ber heitið „Svavar / náttúran – sagan“ opnar í Listasafni Hornafjarðar 16. júní kl. 16.00.
Lesa meira
Spretta er nafnið á smiðjum sem fara fram dagana 18. – 24. Júní á Höfn. Í boði eru þrjár mismunanandi smiðjur fyrir ungt fólk á aldrinum 16 – 25 ára og fara þær fram á kvöldin vikuna fyrir Humarhátíð.
Lesa meira
Þessa dagana er 10 manna hópur nemenda á MA stigi í hönnun frá 8 löndum staddur á Höfn í Hornafirði. Þar taka þeir þátt í námskeiði sem skipulagt er af LHÍ og KHiO skólanum í Osló með styrk frá Cirrus network (samtök norrænna og baltneskra hönnunarháskóla).
Lesa meiraÁ veggnum í þetta sinn er forláta landakort af Íslandi. Kortið er mjög gamalt og er talið vera frá um 1630 til 1645 og er því mjög verðmætt.
Lesa meiraBarnastarf Menningarmiðstöðvarinnar hefst þann 12. Júní næstkomandi á plöntuskoðunarferð um Hornafjörð. Ferðin er samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvar og Vatnajökulsþjóðgarðs í tilefni af Degi hinna viltu blóma sem er þann 17. Júní.
Lesa meira
Menningarmiðstöð Hornafjarðar opnar nýja sýningu í Listasafni Hornafjarðar föstudaginn 25. maí. Sýningin er sumarsýning á verkum Svavars Guðasonar listmálara
Lesa meira
Reykjavík Shorts & Docs kvikmyndahátíðin fagnar 10 ára afmæli á þessu ári og hátíðin hefur aldrei verið jafn stór með 75 stutt- og heimildamyndir. Hátíðin fer á flakk 12. maí og verða sýningar í Sindrabæ með úrval stutt- og heimildamynda af hátíðinni.
Lesa meira
Á Laugardaginn síðasta fór fram Þjóðahátíð í Nýheimum í annað sinn við mjög góðar undirtektir. Átta þjóðir kynntu menningu sína að þessu sinni fyrir gestum og gangandi en það voru Eþíópía, Holland, Ísland, Marokkó, Pólland, Sri Lanka, Tæland og Perú.
Lesa meira
Vortónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða haldnir í Nýheimum í kvöld fimmtudaginn 3. maí kl 20:00. Stjórnandi kórsins er Heiðar Sigurðsson og undirleikari er Jónína Einarsdóttir.
Lesa meira
Þann 5. Maí næstkomandi mun Menningarmiðstöð Hornafjarðar ásamt hópi fólks af erlendu bergi brotið halda Þjóðahátíð í Nýheimum í annað sinn.
Lesa meira
Leikfélag Hornafjarðar 50 ára í samstarfi við Leikhóp FAS Sakamálaleikritið Átta konur eftir Robert Thomas. Leikstjóri Guðjón Sigvaldason. Í þýðingu Sævars Sigurgeirssonar.
Lesa meira
Halldór Gunnar Pálsson kórstjóri Fjallabræðra er um þessar mundir að vinna að stóru verkefni sem miðar að því að reyna að ná rödd þjóðarinnar inn á upptöku.
Lesa meira
Nú líður að 20. bæjarhátíð Hornfirðinga, Humarhátíð, en hún verður haldin helgina 22-24 júní 2012. Undanfarin ár hefur hátíðin verið haldin fyrstu helgina í júlí en á opnum fundi í vetur kom skýrt fram að Hornfirðingar vilja sjá breytingar
Lesa meira
Ari trausti Jarðeðlisfræðingur er þjóðþekktur og hefur skrifað fjölda bóka um náttúru Íslands, jarðfræði, eldfjallafræði, stjörnufræði og umhverfisvernd og svona má lengi telja.
Lesa meira
Næstkomandi sunnudag, þann 25. mars verður dagskrá í Þórbergssetri á Hala í Suðursveit. Dagskráin hefst klukkan 14:00.
Lesa meira
Sýning á ljósmyndum Runólfs Haukssonar áhugaljósmyndara opnar í fremra rými Listasafns þann 16. mars klukkan 16:00. Sýningin ber heitið Skaftfellsk náttúra og myndirnar eru allar teknar af náttúrunni í sýslunni.
Lesa meira
Sýning á málverkum Gunnlaug Scheving listmálara opnar í Listasafni föstudaginn 16. mars klukkan 16:00.
Lesa meiraMálverkið sem prýðir Vegginn á Bókasafninu að þessu sinni er málað af Þórey Guðný Sigfúsdóttir.
Lesa meira
Nú er farið að styttast í vorið og vorverkin kalla. Eitt af þeim er að undirbúa Humarhátíð og er það að komast á fullt skrið.
Lesa meira
Afhending styrkja og Menningarverlauna fór fram á fimmtudaginn í síðustu viku í Nýheimum fyrir fullu húsi. Veittir voru styrkir frá Bæjarráði, úr Skóla, íþrótta og tómstundanefnd, úr Atvinnu og menningarmálanefnd og einnig voru veittir styrkir úr Atvinnu og Rannsóknarsjóði Sveitarfélagsins.
Lesa meiraÁ fimmtudaginn í síðustu viku fóru fram árleg Menningarverðlaun í Nýheimum fyrir fullu húsi. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1995.
Lesa meira
Fimmtudaginn 1.mars næstkomandi heimsækja nemendur í Safnafræði við Háskóla Íslands Hornafjörð.
Lesa meira
Miðvikudaginn 14. mars næstkomandi verður haldin ráðstefna um Kvískerjasjóð á Smyrlabjörgum í Suðursveit, kynnt verða verkefni sem hafa hlotið styrki frá sjóðnum í gegnum tíðina.
Lesa meiraÍ gær kenndi ýmissa grasa í Nýheimum vegna Öskudagsins. Mikil umferð var um húsið allan daginn af syngjandi krökkum í allskyns gervi.
Lesa meira
Afhending styrkja frá Sveitarfélaginu Hornafirði og árlegra Menningarverðlauna fer fram í Nýheimum fimmtudaginn 23. febrúar klukkan 16:00.
Lesa meira
Ásta Eiríksdóttir fæddist 28. janúar 1912 í Bakkagerði í Borgarfirði eystra. Sautján ára hleypti hún heimdraganum og fluttist til Kaupmannahafnar.
Lesa meira
Sýningin [´anli:t] eða andlit er fyrsta ljósmyndasýning föndrarans og ljósmyndarans Þórgunnar Þórsdóttur. Þórgunnur hefur lengi vel haft áhuga á mannlífi og manneskjunni.
Lesa meiraListasafn Hornafjarðar opnar sýninguna Aðföng – gömul og ný fimmtudaginn 26. janúar klukkan 16:00. Á sýningunni eru verk eftir 6 listamenn sem allir eru tengdir Hornafirði á einn eða annan hátt.
Lesa meira
Þórgunnur Þórsdóttir á vegginn minn að þessu sinni. Verkið hennar nefnist Eplasteinn og er ljósmyndaverk og einnig lokaverkefni hennar úr Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Lesa meira
Í febrúar ár hvert fer fram afhending styrkja frá Sveitarfélaginu og á sama tíma eru afhent menningarverðlaun. Markmiðið með þessum verðlaunum er að vera hvatning til eflingar menningar og listastarfs í sveitarfélaginu.
Starfsfólk Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar Þakkar gott samstarf á árinu sem er að líða og óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Lesa meira
27. desember opið frá 13:00 til 17:00 28. desember opið frá 9:00 til 17:00 29. desember opið frá 9:00 til 17:00 30. desember opið frá 9:00 til 17:00
Lesa meiraÞorláksmessa lokað 27. desember opið frá 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30 28. desember opið frá 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30 29. desember opið frá 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30 30. desember opið frá 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30
Lesa meira
Frostrósir halda í ár upp á tíunda tónleikaárið og blása til sannkallaðrar tónleikaveislu á aðventunni. Í tilefni afmælisins verður tónleikaferð Frostrósa um landið enn viðameiri en áður og bætist Höfn í Hornafirði nú aftur í hóp tónleikastaða.
Lesa meira
Rithöfundakynning Menningarmiðstöðvar fór fram þann 29. nóvember í Pakkhúsinu fyrir fullu húsi.
Lesa meira
Laugardaginn 3. desember verður árlegur jólamarkaður í Nýheimum og Pakkhúsinu. Markaðurinn hefur verið mjög vinsæll síðustu árin og vafalaust verður engin breyting á því í ár.
Lesa meira
Nemendur FAS hafa verið í í Ljósmyndaáfanga hjá Sigurði Mar á haustönninni og afrakstur þess áfanga er meðal annars ljósmyndasýning sem opnar í Nýheimum laugardaginn 3. desember.
Lesa meira
Sýning á verkum Elínborgar Pálsdóttur opnar í fremra rými Listasafns þann 2. desember klukkan 16:00. Sýningin er yfirlitssýning á verkum Elínborgar en hún hefur málað í rúm 30 ár.
Lesa meira
Eldri borgarar sem sækja Dagvist aldraðra gerðu á dögunum lampa og luktir í mósaík stíl. Alls eru laparnir níu talsins og luktirnar fjórar og eru þessir munir fagurlega skreyttir með marglitu gleri.
Lesa meira
Árlegur upplestur rithöfunda verður í Pakkhúsinu í kvöld þriðjudaginn 29. nóvember klukkan 20:00. Alls eru átta rithöfundar sem heimsækja okkur í þetta sinn.
Lesa meira
Nú er vinavina í gangi í Grunnskóla Hornafjarðar og eitt að verkefnum vikunnar er það að búa til sinn eigin draumaskóla. Krakkar frá fyrsta bekk upp í 10 bekk voru settir í blandaða hópa og beðnir um að búa til sína eigin útgáfu að draumaskólanum.
Lesa meira
Lay Low er á ferð um landið með hljómsveit sinni og ætlar að halda tónleika í Pakkhúsinu föstudaginn 25. nóvember. Ný plata hennar Brostinn strengur kom út núna á dögunum og er hún að fylgja henni eftir með tónleikum um allt land.
Lesa meira
Fyrirhugað er að hafa sýningu á verkum Elínborgar Pálsdóttur í fremra rými Listasafns Hornafjarðar í desember.
Lesa meira
Norræn Bókasafnavika hefst mánudaginn 14. Nóvember og er þetta í 15 sinn sem vikan er haldin en hún er haldin með það fyrir augum að lyfta undir norræna frásagnahefð og bókmenntir.
Lesa meira
Veggurinn minn er með óhefðbundnu sniði að þessu sinni. En verkin sem eru til sýnis hanga ekki á veggnum eins og vanalega, heldur eru staðsett í sýningarkössum.
Lesa meiraSafnahelgi á suðurlandi hefst á föstudaginn. Handverks og listafólk, veitingahús og söfn á öllu suðurlandi verða með ýmsa viðburði í gangi alla helgina.
Lesa meira
Mugison er okkur Hornfirðingum góðkunnur en hann hefur oft áður lagt ferð sína til Hafnar og spilað fyrir Hornfirðinga og sagt sögur af ferli sínum.
Lesa meiraSafnahelgi á Suðurlandi er orðinn árviss viðburðu. Söfn, setur, sýningar, gestastofur, gallerí, matsölustaðir og matarverkefni verða í forgrunni á Suðurlandi helgina 4.-6. nóvember
Lesa meiraÁsgeir er fæddur árið 1943. Hann byrjaði að mála undir leiðsögn í byrjun árs 2011 þegar hann byrjaði í dagdvöl eldri borgara á Hornafirði.
Lesa meira
Málþing á vegum Þórbergsseturs, Háskólseturs Hornafjarðar og Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum verður haldið í Þórbergssetri dagana 22. – 23. október næstkomandi.
Lesa meira
Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sækir okkur Hornfirðinga heim í næstu viku og býður okkur upp í dans. Jón Pétur er okkur vel þekktur og hefur síðastliðin 3 ár kennt okkur að tjútta og mun halda áfram þar sem síðast var frá horfið
Lesa meiraMenningarmiðstöð Hornafjarðar, Listasafn, opnar sýningu á verkum Jóns Þorleifssonar frá Hólum laugardaginn 15. október klukkan 15:00. Sýningin mun standa til 30. desember. Listasafnið er opið alla virka daga frá klukkan 9 til 12 og 13 til 15:30 og er aðgangur að sýningunni ókeypis.
Lesa meira
Safnahelgin verður haldin í fjórða skipti 4.-6. nóvember. Söfn, setur, veitingastaðir, kaffihús, listamenn, handverksfólk, allir sem hafa áhuga geta verið með.
Lesa meiraTryggvi Sigurðsson frá Fagurhólsmýri í Öræfum á fyrsta Vegg vetrarins. Tryggvi er fæddur þann 6. Október árið 1931. Hann byrjaði að mála undir leiðsögn í Dagvist eldri borgara á Hornafirði árið 2010 og á veggnum ber að líta hluta af málverkum hans.
Lesa meira
Í kvöld heldur tónlistarmaðurinn Eyjólfur Kristjánsson „Eyfi“ tónleika í Hafnarkirkju og hefjast þeir kl.20. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferð Eyfa sem hann heldur af tilefni 50 ára afmælis síns, en hann mun halda 50 tónleika víðsvegar um Ísland.
Lesa meira
Frostrósir halda í ár upp á tíunda tónleikaárið og blása til sannkallaðrar tónleikaveislu á aðventunni. Í tilefni afmælisins verður tónleikaferð Frostrósa um landið enn viðameiri en áður og bætist Höfn í Hornafirði nú aftur í hóp tónleikastaða.
Lesa meira
Eins og bæjarbúar hafa eflaust tekið eftir síðustu vikuna hefur stór hópur fólks verið áberandi í bæjarfélaginu, en þetta voru 50 nemendur í hönnunardeild Listaháskóla Íslands sem voru hér í skólaheimsókn.
Lesa meira
Boðið verður upp á Töðugjöld, en það er gömul íslensk hátíð þar sem haldið er upp á að heyskapnum sé lokið, en túnið við Gömlubúð var einmitt heyjað um síðustu helgi.
Lesa meiraMyndlistarsýningin “Hvítblinda” er ljósmynd- og hljóðsýning. Hugmyndin bak við sýninguna er að tengja saman hljóð og mynd og reyna þannig að skapa kröftugt andrúmsloft kringum hverja mynd auk samhljóms meðal verka.
Lesa meiraBarnastarf Menningarmiðstöðvar fellur niður í dag. Í næstu viku þriðjudaginn 9. ágúst, verður farið í óvissuferð en hún verður auglýst síðar. Hlökkum til að sjá ykkur í næstu viku.
Lesa meira
Það er búið að vera nóg að gera í menningarviðburðum hér á Hornafirði í sumar og enn er á nógu að taka.
Lesa meira
Fyrsta loftárás Þjóðverja hér á landi var gerð við ræktunarlöndin skammt innan við Höfn en þar var bresk miðunarstöð
Lesa meira
Samverustundin er tengd gömlum sögnum tengdum Ólafi helga Noregskonungi en hann var verndardýrlingur kirkjunnar á Kálfafellsstað.
Lesa meira
Starfsmenn Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar með Björn Arnarson í fararbroddi eru farnir að huga að flutningum Gömlubúðar.
Lesa meira
Leikhópurinn Lotta sýnir glænýtt íslenskt leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö á túninu hjá Hótel Höfn fimmtudaginn 14. júlí. klukkan 18.
Lesa meira
Hornfirðingurinn Hlynur Pálmason verður með tvær sýningar í Nýheimum í þessari viku.
Lesa meiraÍ gær þriðjudag fóru 10 hressir krakkar í ferð með barnastarfinu að Víkingaþorpinu á Horni.
Lesa meiraÁ þriðjudag fóru 14 krakkar, 2 starfsmenn Menningarmiðstöðvar á lúruveiði í Skarðsfirði með Gísla Karl lúruveiðimanni.
Lesa meira
Nýr sýningasalur Listasafns Hornafjarðar var opnaður við hátíðlega athöfn í blíðskaparveðri föstudaginn 24. júní.
Lesa meiraÍ dag fóru 10 hressir krakkar í fjöruferð á vegum Menningarmiðstöðvarinnar.
Lesa meira
Leikhópurinn Lotta sýnir glænýtt íslenskt leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö í Íþróttahúsinu þann 14. júlí. næstkomandi klukkan 18:00. Þetta er fimmta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi.
Lesa meira
Opnun Listasafns Hornafjarðar Föstudaginn 24. Júní nk. opnar nýr sýningasalur Listasafns Hornafjarðar við hátíðlega athöfn. Salurinn er til húsa í Gömlu Slökkvistöðina og opnunarsýning er á verkum Svavars Guðnasonar.
Lesa meira
Þeir félagar Friðrik Ómar og Jógvan Hansen eru á fleygiferð um landið vítt og breitt nú í sumar.
Lesa meira
Sýning á verkum Tolla opnar 30. júní í Kartöfluhúsinu. Tolli kom fram á sjónarsviðið sem einn af upphafsmönnum nýja málverksins í byrjun níunda áratugarins.
Lesa meira
Þriðjudaginn 21. júní fór 14 krakkar saman ásamt starfsmönnum menningarmiðstöðvarinnar í heitu pottana í Hoffelli. Lagt var af stað frá bókasafninu kl 13 á Sindrarútunni og komið var inní Hoffell skömmu síðar og ekki leið á löngu þar til fyrstu krakkarnir voru komin ofan í pottana.
Lesa meira
Nú á þriðjudaginn var fyrsta ferð sumarsins í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar. Farið var með átta hressa krakka í fuglaskoðunarferð í Óslandið, en vani er að hefja sumarstarfið með fuglaskoðunarferð.
Lesa meira
Málþing í Þórbergssetri 17. júní með írskum fræðimönnum og sæfarendum um ferðir Papa og siglingar í norður höfum á fyrri tíðrskum fræðimönnum og sæfarendum
Lesa meiraí sumar mun Gamlabúð lifna við en þar verður boðið upp á ýmsa viðburði sem tengjast lifnaðarháttum fyrri tíma. Við ætlum að byrja á þjóðbúningadegi á þjóðhátíðardaginn sjálfann þann 17. júní
Lesa meira
Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar er að hefjast. Fyrsta ferð sumarsins er fuglaskoðunarferð en nú er varpið á fullu í Óslandinu og nóg af litlum ungum til að skoða. Það verður svo nóg um að vera hjá okkur í sumar en við förum í 9 ólíkar ferðir út um alla sýsluna.
Lesa meiraSýningin heitir " Fjarlægðir" og gefur að líta 17 verk sem listakonan hefur unnið að síðustu misseri.
Lesa meira
Humarhátíð á Hornafirði verður fyrstu helgina í júlí að vanda. Hátíðin verður með nokkuð hefðbundnu sniði en nýjungarnar í ár verða verkefnið Ekki lúra of lengi á vegum Ferðafélags Austur - Skaftafellssýslu en það stendur fyrir fjölda skemmtilegra ferða vikuna fyrir Humarhátíð.
Lesa meira
Um helgina fer fram í Nýheimum Pólsk kvikmyndahátíð á vegum Tarnow City Gallery og Kronika Center for Contemporary Arts í Póllandi ásamt Íslenskum aðilum. Um er að ræða farandsýningu en myndirnar verða sýndar um land allt í sumar en fyrsti sýningarstaður er í Nýheimum Hornafirði.
Lesa meira
Krakkarnir á Leikskólanum Lönguhólum eiga síðasta vegg fyrir sumafrí. Myndirnar sem prýða vegginn eru eftir nemendur af öllum deildum leikskólans Lönguhóla.
Lesa meira
Nemendur í 2. SÞ í Hafnarskóla kynntu sér sögu húsanna í bænum. Fyrst heimsóttum við Bókasafnið sem lánaði okkur bók sem heitir Byggðarsaga Austur – Skaftafellssýslu.
Lesa meira
Málþing á vegum Þórbergsseturs, Háskólseturs Hornafjarðar og Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum verður haldið í Þórbergssetri dagana 28. - 29 maí næstkomandi.
Lesa meira
Þann 28. apríl síðastliðinn sendi Menningarmiðstöð Hornafjarðar frá sér 6 kassa af ullarfatnaði til Japan. Átakið prjónað til styrktar Japan er búið að vera í gangi á Bókasafninu frá því þann 7. apríl síðastliðinn.
Lesa meira
Mig langar að tileinka tengdaföður mínum vegginn þessa vikuna. Hann heitir Friðrik Jónsson og hefur hann verið að mála til margra ára. Eftir að hann hætti að vinna, um sjötugt, fór hann í myndlistarskóla en hann hafði alltaf haft áhuga á að teikna og mála.
Lesa meira
Velferðaráðuneytið og Vinnumálastofnun standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum á vegum stofnana ríkisins og sveitarfélaga, fyrir námsmenn og atvinnuleitendur. Hér finnur þú upplýsingar um störf sem í boði eru hjá Sveitarfélaginu Hornafjörður.
Lesa meira
Vegginn minn að þessu sinni eiga börn af öllum deildum á Leikskólanum Krakkakoti. Þemað er Páskarnir og því eru Páskaungarnir og eggin mjög áberandi á myndum barnanna. Myndirnar eru 25 talsins og sjón er sögu ríkari.
Lesa meira
Þann 7. apríl síðastliðinn var haldin prjónadagur á Bókasafninu, en tilgangurinn með honum er sá að senda hlýjan prjónafatnað til Japan, en þar er mjög kalt á nóttunni.
Lesa meira
Sýningin þetta vilja börnin sjá er farandsýning frá Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Á sýningunni eru myndskreytingar úr íslenskum barnabókum 2010 og verður hún á Bókasafni Nýheima frá 7. til 28. apríl.
Lesa meira
Hafdís Lára Sigurðardóttir á vegginn að þessu sinni. Vegginn prýðir veggteppi sem er gert um í lok árs 1998. Hafdís Lára fékk það í skírnargjöf frá ömmu sinni Margot en Hafdís var skírð 16. janúar 1999. Teppið er silkimálað og þemað er örkin hans Nóa.
Lesa meira
Myndirnar sem prýða vegginn að þessu sinni eru í eigu þeirra Þóreyjar Sigfúsdóttir og Björns Kristjánssonar. Myndirnar eru í miklu uppáhaldi hjá þeim og eru þrjár talsins.
Lesa meiraÞann 4. til 6. mars næstkomandi verður sjötta Norðurljósablúshátíðin haldin á Hornafirði en fyrsta helgin í mars hefur fest sig í sessi sem blúshátíðarhelgi frá upphafi.
Lesa meira
Dorothee Lubecki Menningarfulltrúi Suðurlands verður til viðtals í fundarherbergi frumunnar í Nýheimum í dag, mánudaginn 28. Febrúar frá klukkan 10:00 til 14:00 og lengur ef nauðsyn krefur.
Lesa meira
Önnu Guðlaugu langaði til þess að sýna tvær myndir sem faðir hennar gerði handa henni og munu hanga á vegg Bókasafnsins næstu tvær vikurnar.
Lesa meira
Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag.
Lesa meira
Rigmor Jensen á Vegginn minn að þessu sinni. Rigmor hefur saumað bútasaum í þó nokkurn tíma og er í Bútasaumsfélaginu Ræumunum, sem kemur reglulega saman og saumar.
Lesa meira
Soffía Auður er hrifin af uglum því þær eru tákn visku og þekkingar. Nafnið hennar kemur úr grísku og merkir viska (sophia), svo þarna eru skemmtileg tengsl.
Lesa meira
Þessar þrjár myndir sem hérna sjást eru sýnishorn af tómstundagamni Valgerðar Sigurðardóttir á liðnum árum. Þær eru málaðar með acryl litum.
Lesa meira
Námskeið í Evrópu Unga Fólksins verður um helgina. Öllum áhugasömum einstaklingum á aldrinum 13 – 30 ára er velkomið að taka þátt endurgjaldslaust.
Lesa meira
Á morgun miðvikudag opnar sýning í Nýheimum sem nefnist Hornfirðingar að verki og er yfirlitssýning yfir handverk og teikningar þeirra Ragnars Arasonar og Gísla Eysteins Aðalsteinssonar og verður sýningin opin út desember og er þetta sölusýning.
Lesa meira
Nú um síðustu helgi hófst verkefnið Evrópa unga fólksins. Markmið verkefnisins er að efla sjálfstraust fólks til að geta tekið þátt í umræðum um stöðu mála og getu til að hafa áhrif á samfélagið, stjórnendur og svo framvegis og aðalmarkmiðið er að efla ungt fólk á aldrinum 13 til 30 ára til þátttöku í mótun samfélagsins okkar
Lesa meira
Þann 4. desember verður árlegur jólamarkaður í Nýheimum og Miðbæ. Markaðurinn hefur verið mjög vinsæll síðustu ár þannig að nú fer hver að verða síðastur að panta sér bás fyrir vörurnar sínar.
Lesa meira
Yfirlitssýning á verkum David White stendur nú yfir í Nýheimum. Hann bjó á Hornafirði fyrir um 17 árum síðan og málaði fjöldann allan af málverkum á meðan á dvöl hans stóð.
Lesa meiraHéraðsskjalasafn Austur- Skaftafellssýslu tekur þátt í opnu húsi í Borgarskjalasafni Reykjavíkur á laugardaginn. Þar verður einnig sýnd myndin "Í jöklanna skjóli" og Söngfélag Skaftfellinga syngur.
Lesa meira
Þann 8. nóvember 2010 hófst Norræna bókasafnsvikan í fjórtánda skiptið og þemað í ár er ”Töfraheimar Norðursins”. Vikan er haldin með það fyrir augum að gæða norrænu sagnahefðina nýju lífi.
Lesa meira
Jón Pétur hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sækir okkur Hornfirðinga heim í næstu viku og býður okkur upp á dansnámskeiðið sitt vinsæla.
Lesa meiraMichael og Felicity eru hætt störfum og það gefur þeim tíma til að láta eftir sér að stunda áhugamál sitt, en þau eru bæði ástríðufullir náttúruunnendur.
Lesa meira
Nú er Útsvar að fara í gang þann 17. september og eru Hornfirðingar með sterkt lið að vanda, en það eru þeir feðgar frá Skálafelli Þorsteinn Sigfússon Bóndi og Þorvaldur Þorsteinsson Lögfræðingur, ásamt Jóni Eiríkssyni Verkfræðingi sem taka þátt fyrir okkar hönd í ár.
Lesa meira
Nú í haust bárust Sveitafélaginu Hornafirði veigamiklar gjafir en þær eru málverk eftir Jón Þorleifsson og Bjarna Guðmundsson sem eru báðir Hornfirskir myndlistamenn og hafa málað landslagsmyndir úr sýslunni ásamt öðru.
Lesa meira
Dans dans dans. Nú býður Menningarmiðstöðin í samstarfi við Víkina upp á danskvöld fyrsta fimmtudag í mánuði á Víkinni klukkan 20:00.
Lesa meiraVetrarstarf Menningarmiðstöðvarinnar er að hefjast og kennir ýmissa grasa í starfinu fram undan. Fastir liðir eins og föstudagshádegi Nýheima, prjónakaffi, sögustundir og Veggurinn minn verða á sínum stað.
Lesa meira
Sigríður Jónsdóttir frá Vogum í Reykjahlíð við Mývatn var kjarnakona og Móðir þeirra bræðra Nonna og Manna.
Lesa meira
David White er mörgum hornfirðingum kunnur en hann dvaldi hér um tíma fyrir mörgum árum og teiknaði myndir af svæðinu og fólkinu hérna.
Lesa meira
Trúbatrixur eru komnar á kreik eftir velheppnaðan tónleikaferð í vor til Bretlands og búnar að vera á tónleikaferð um Ísland í ágúst í samstarfi við Kraum tónlistarsjóð.
Lesa meira
Síðasta ferðin í Barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar var á þriðjudaginn í dýrindis veðri. Tíðkast hefur að hafa síðustu ferðina óvissuferð en í þetta skiptið var haldið á Mýrarnar.
Lesa meiraÍ barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar síðasta þriðjudag var farið í eyðibýlaskoðun í Þórisdal í Lóni með 9 hressa krakka. Býlið Þórisdalur var skoðað en það lagðist í eyði árið 1968 eða fyrir 42 árum síðan.
Lesa meira
Á þriðjudaginn fór barnastarf Menningarmiðstöðvar í heyskap. Ekki hafði viðrað vel til þess háttar starfa svo að jafnvel var haldið að fresta yrði heyskap að þessu sinni.
Lesa meira
Föstudaginn 2. júlí klukkan 17:00 opnar sýning á verkum Svavars Guðnasonar í Nýheimum. Á opnuninni verða verk úr dánarbúi Ástu Eiríksdóttur, ekkju Svavars afhent sveitarfélaginu við formlega athöfn.
Lesa meira
Á þriðjudaginn fóru krakkarnir í barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar í fuglaskoðunarferð í Óslandið. Leiðsögumaðurinn í ferðinni var Björn Arnarsson en hann fræddi krakkana um alla fuglana sem að verpa í Óslandinu á sumrin.
Lesa meira
Á þriðjudaginn fór Menningamiðstöðin í fyrstu Barnastarfsferð sumarsins. Í ferðinni voru 9 hressir krakkar. Ferðinni var haldið að Hólmi í Nesjum þar sem fornleifarannsóknir hafa verið í gangi á hverju sumri síðastliðin ár.
Lesa meira
Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar er hafið! Það verður nóg um að vera hjá okkur í sumar. Við förum í 9 skemmtilegar ferðir
Lesa meira
Í vikunni fyrir Humarhátíð verður haldið námskeið í leiklist og kvikmyndagerð fyrir 9 - 18 ára. Að námskeiðinu stendur menntað fólk í kvikmyndagerð sem hefur töluverða starfsreynslu í greininni, auk þess að vinna með börnum.
Lesa meira
Undirbúningur fyrir humarhátíð sumarsins er nú hafin af fullum krafti
Lesa meira
Tvær myndir eftir Bjarna Guðmundsson prýða vegginn þessa vikuna. Báðar myndirnar eru málaðar um 1950 og eru í eigu Gauta Árnasonar og móður hans Svövu Sverrisdóttir.
Lesa meira
Gingó á vegginn minn þessa vikuna. Verkið nefnist Vorboðinn og er akrýl málverk sem Gingó kláraði að mála í maí 2010.
Lesa meira
Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sótti okkur Hornfirðinga heim í síðustu viku og hélt námskeið fyrir grunnskólabörn frá 6 og upp í 16 ára en hélt svo einnig opið kvöldnámskeið fyrir alla þá sem vildu bæta sig í dansi.
Lesa meira
Sossa, olía á striga. Þannig vildi til að við hjónin hittum listakonun Sossu í matarboði hjá sameiginlegum vinum á Akureyri. Þetta var um það bil sem Sossa var að slá í gegn og hafði fengið mjög góða dóma fyrir sýningu sem hún var með í Reykjavík.
Lesa meira
Verkið er eftir Magnús Tómasson (f. 1943) sem er helst þekktur í dag fyrir að vera einn af stofnendum SÚM-hópsins, fyrir ljóðræna skúlptúra úr óhefðbundnum efnum, svo og fyrir öflug útilistaverk.
Lesa meira
Jón Pétur hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru verður með dansnámskeið fyrir Hornfirðinga í næstu viku.
Lesa meira
Verkin á veggnum þessa vikuna eru eftir Gísla Eystein Aðalsteinsson. Gísli hefur teiknað í fjölda ára og eru margir Hornfirðingar sem eiga teikningar eftir hann.
Lesa meira
Vegg vikunar að þessu sinni á Ingibjörg Steinsdóttir og eru munirnir sem hún lánaði okkur til sýningar þessa vikuna af ýmsu tagi.
Lesa meira
Hin árlega bridgehátíð og hrossakjötsveisla verður haldin í Þórbergssetri um helgina.
Lesa meira
Sýningin Þetta vilja börnin verður opnuð í Nýheimum á föstudaginn og stendur til 12. apríl.
Lesa meira
Í gær opnaði annað árið í röð glæsileg sýning áhugaljósmyndara í Pakkhúsinu. Ljósmyndararnir sem tóku þátt voru 41 talsins og eru yfir 400 myndir á sýningunni.
Lesa meira
Þá er komið að annarri Áhugaljósmyndarasýningu í Pakkhúsinu. Fyrirhugað er að halda aðra áhugaljósmyndarasýningu í Pakkhúsinu í mars.
Lesa meiraEvrópa unga fólksins er íslenska heitið á Ungmennaáætlun Evrópusambandsins, Youth in Action, og er samstarfsverkefni ESB, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og UMFÍ.
Lesa meira
Kvikmyndasjóður Skaftfellinga lét á árunum 1952-1958 gera kvikmyndir í Skaftafellssýslum sem fjalla um horfna atvinnu-, menningar- og lifnaðarhætti auk kynningar á byggðarlögum og landslagi í sýslunum.
Lesa meiraHelgi Björnsson jöklafræðingur heldur fyrirlestur vegna nýútkominnar bókar sinnar Jöklar á Íslandi, með honum í för eru þau Kristín G. Guðnadóttir sem skrifað hefur um Svavar Guðnason Listmálara, ásamt Jóni Kalman Stefánssyni sem kynnir nýja bók sína Harmur Englanna.
Lesa meira
Þá er komið að því! Hin árlega Bókakynning Bókasafnsins verður mánudagskvöldið 30. nóvember kl. 20:30 í Pakkhúsinu en einnig fara rithöfundarnir í heimsókn í skólana.
Lesa meira
Árlegur jólamarkaður verður haldin í Nýheimum og í Miðbæ þann 5. desember næstkomandi.
Lesa meira
Í gær voru liðin 100 ár liðin frá fæðingu hornfirðingsins Svavars Guðnasonar listmálara
Lesa meira
Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember fer Stóra upplestrarkeppnin af stað í grunnskólum landsins. Hún er haldin meðal 7. bekkinga á landinu öllu og munu þeir æfa sig í upplestri næstu vikur og mánuði.
Lesa meira
Hjaltalín, Snorri Helgason og Sigríður Thorlacius & Heiðurspiltar munu á næstu dögum og vikum að halda í ærlegt fagnaðarferðlag til að kynna plötur sínar, sem allar koma út á þessu ári undir merkjum Borgarinnar - hljómplötuútgáfu.
Lesa meira
Auglýsing um verkefnastyrki til menningarstarfs á Austurlandi Menningarráð Austurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki.
Lesa meira
Héraðsskjalasafnið á Hornafirði tekur þátt í norræna skjaladeginum með framlagi á vef skjaladagsins og þá verður opið hús á safninu milli 10:00 og 14:00 laugardaginn 14. nóvember .
Lesa meira
Hornfirðingar geta hlakkað til í nóvember og desember, nóg verður um að vera í tónlistarlífinu á Hornafirði.
Lesa meira
Hljómsveitin Mannakorn ætlaði að halda stórtónleika í Íþróttahúsinu fimmtudaginn 26. Nóvember, ásamt hljómsveitinni Buff, en vegna breytinga verða tónleikarnir haldnir eftir áramótin.
Lesa meira
Fyrsta taflkvöld vetrarins var haldið í Pakkhúsinu s.l. þriðjudagskvöld.
Lesa meira
Síðastliðinn laugardag var fyrsti markaðsdagur vetrarins í Pakkhúsinu
Lesa meira
Á laugardaginn næsta eða þann 26. september verður markaðsdagur í Pakkhúsinu.
Lesa meira
Miðvikudaginn 2. september var Miðgarður opnaður. Þá var tilkynnt hverjir voru kosnir til Miðgarðsráðs.
Lesa meira
Veggurinn minn og Hugmyndabankinn
Nýr liður sem nefnist Veggurinn minn er á dagskránni hjá Menningarmiðstöðinni í haust og settur verður af stað hugmyndabanki inn á samfélagsvefnum.
Lesa meira
Þann 24. október næstkomandi er fyrirhugaður kynningardagur í Nýheimum þar sem kynnt verða verkefni sem hlotið hafa styrki frá Sveitarfélaginu Hornafirði og stofnunum inna Nýheima,
Lesa meira
Nú er haustið komið og Menningarmiðstöðin er farin að skipuleggja veturinn.
Lesa meira
Hornfirska hljómsveitinn Unoriginal Jon er um þessar mundir að smíða breiðskífu
Lesa meira
Laugardaginn 5. september verður haldið útgáfuteiti í fundarhúsi Lónmanna, í tilefni útgáfu bókar Kristínar Jónsdóttur, Bréf til næturinnar sem Félag ljóðaunnenda á Austurlandi gefur út
Lesa meira
Í þessari viku verður mikið um listir og byrja viðburðirnir þann 11. ágúst, eða á morgun.
Lesa meira
Handverks og hönnunarsýningin Handapat hefur verið í Nýheimum frá því á Humarhátíð og hefur hún vakið mikla lukku og fengið marga gestina.
Lesa meira
Jagúar er í tónleikaferð um landið í júlí og ætla sér að koma við á nokkrum vel völdum stöðum og þar á meðal Hornafirði.
Lesa meira
Fimmtudaginn 16. júlí mun Leikhópurinn Lotta vera í Höfn í Hornafirði með nýjustu leiksýningu sína Rauðhettu.
Lesa meiraHumarhátíðarhelgina fór fram Ljósmyndamaraþon á vegum Menningarmiðstöðvar
Lesa meira
Þetta verður án efa afar skemmtilegt námskeið og um að gera að skrá sig
Lesa meira
Síðastliðið sumar var gerð tilraun með einskonar listasmiðju fyrir Humarhátíð þar sem ýmislegt var til gamans gert en aðalatriðið var að taka virkan þátt í skrúðgöngu og opnunarhátíð Humarhátíðar. Viðtökur voru mjög góðar og því á að reyna aftur í sumar.
Lesa meira
Um miðjan júní byrjar hönnunar- og listanámskeið á vegum félagsmiðstöðvarinnar Miðgarðs og Menningarmiðstöðvar.
Lesa meira
Allar myndir sem berast í maraþonið verða svo settar inn í myndasafnið á humar.is
Lesa meiraEr þetta metnaðarfullt starf sem starfsfólkið á Menningarmiðstöðinni vinnur með börnin og taka allir þátt
Lesa meira
Áætlað er að búa til sögusýningu um Humarhátíð í ár, en þetta sumarið er það sautjánda sem hátíðin hefur verið haldin.
Lesa meira
Um Hvítasunnuhelgina, 31. maí – 1.júní, heimsækir okkur sænski vísindamaðurinn dr. Fred Goldberg.
Lesa meira
Með vortónleikum þessum lýkur hefðbundnu vetrarstarfi ungmennanna í Kór Flensborgarskólans og hluti söngvara kveður kórinn um leið og þeir útskrifast frá skólanum.
Lesa meiraÁ annað hundrað börn á öllum aldri komu að skoða sýninguna.
Lesa meira
Helgina 16. og 17. maí verða opnaðar formlega tvær nýjar sýningar í Þórbergssetri.
Lesa meira
Á sumardaginn fyrsta fór fram Þjóðahátíð í Nýheimum við frábærar undirtektir.
Lesa meira
Úrslit í spurningakeppni fyrirtækjanna réðust í gærkvöldi.
Lesa meiraSpurningakeppni fyrirtækjanna hefur verið fádæma vinsæl í vetur
Lesa meira
Menningarmiðstöð Hornafjarðar ásamt Rauðakrossdeild Hornafjarðar standa fyrir Þjóðahátíð í Nýheimum á morgun, sumardaginn fyrsta.
Lesa meira
Skriðuklaustur og Þórbergssetur hafa unnið að samstarfsverkefni um að skrá fermingarsögur eftir eldra fólki á Austurlandi síðastliðið ár.
Lesa meira
Nýlega úthlutaði Kvískerjasjóður styrkjum ársins 2009 og er það sjötta úthlutun frá stofnun hans árið 2003. Tólf umsóknir bárust og var samanlögð upphæð umsókna á sjöttu milljón króna. Að þessu sinni er úthlutað til sjö verkefna
Lesa meira
Föstudaginn 17. apríl halda Karlakór Akureyrar-Geysir og Karlakórinn Jökull sameiginlega tónleikum í Hafnarkirkju.
Lesa meira
Seinni hluti 16 liða spurningakeppninnar fór fram í Hafnarkirkju um síðustu helgi.
Lesa meira
Keppnin var flutt í Hafnarkirkju og mættu um 130 manns
Lesa meira3. hluti spurningakeppni fyrirtækjanna fór fram á sunnudaginn í troðfullum fyrirlestrarsal Nýheima og þar mættu 6 lið til leiks að þessu sinni
Lesa meira
Sagt hefur verið að Sálmurinn um blómið sé bók fyrir börn á öllum aldri.
Lesa meira
Í næstu viku verður formleg opnunarhátíð þar sem öllum er velkomið að kíkja
Lesa meiraLeikhópur Fas hefur undanfarið æft leikritið "Eftir lífið" eftir Sigtrygg Magnason og verður frumsýningin laugardaginn 21.mars, er það Kristín Gestsdóttir sem leikstýrir.
Lesa meira
Leikhópur FAS frumsýnir 21. mars n.k. leikritið Eftir lífið eftir Sigtrygg Magnason í leikstjórn Kristínar G Gestsdóttur.
Lesa meira
Háskólasetrið á Höfn og Þórbergssetur bjóða öllum Hornfirðingum og íbúum nærsveita að taka þátt í opnu námskeiði þar sem fjallað verður um Þórberg Þórðarson, ævi hans og verk.
Lesa meiraÁ sunnudaginn var, 8. mars, fór fyrsta lotan fyrir spurningakeppni fyrirtækjanna fram í fyrirlestrarsal Nýheima.
Lesa meira
Dean hefur getið sér orð víða um lönd fyrir óvenjulega og bráðskemmtilega tónleika/ kvöldskemmtanir þar sem hann nálgast sígilda tónlist og bókmenntir með afar sérstæðum og oft bráðfyndnum hætti án þess að slá nokkurn tíma af listrænum kröfum.
Lesa meira
Feðgarnir Örn Elías og Guðmundur kafteinn betur þekktir sem Mugison og Muggur munu heiðra Hafnarbúa með nærveru sinni á Humarhöfninni næstkomandi föstudag.
Lesa meiraBlúshátíðin Norðurljósablús verður haldin í fjórða sinn á Höfn í Hornafirði dagana 5. til 7. mars næstkomandi.
Lesa meira
Lionsklúbburinn í samvinnu við Menningarmiðstöð hefur ákveðið að standa fyrir spurningakeppni fyrirtækja næstu sunnudagskvöld.
Lesa meiraUnglingarnir okkar voru til fyrirmyndar og viljum við starfsmennirnir þakka kærlega fyrir skemmtilega ferð!
Lesa meira
Háskólasetrið á Höfn og Þórbergssetur bjóða öllum Hornfirðingum og íbúum nærsveita að taka þátt í opnu námskeiði þar sem fjallað verður um Þórberg Þórðarson, ævi hans og verk.
Lesa meira
Á morgun, föstudaginn 20. febrúar opnar sýningin „Haltu kjafti og vertu þæg!“ í Nýheimum.
Lesa meira
Rúmlega 400 myndir voru komnar þegar skilafrestur rann út 30. janúar.
Lesa meira
Reynt verður að hafa sem mesta og fjölbreyttasta starfsemi í húsinu fylla það af lífi og áhugamálum og ná til allra þessara aldurshópa og eins til þeirra eldri sem fá aðstöðuna á efri hæðinni.
Lesa meira
Útskriftarnemar FAS 2009 hafa tekið sig saman og komið sér í samband við ýmsa hornfirska tónlistarmenn, unga sem aldna, allt frá klassískum söngvurum og harmonikkusnillingum til hörðustu rokkbanda bæjarins.
Lesa meira
Föstudaginn 6. febrúar fór fram afhending Menningarverðlauna fyrir árið 2008.
Lesa meira
Háskólasetrið á Höfn og Þórbergssetur bjóða öllum Hornfirðingum og íbúum nærsveita að taka þátt í opnu námskeiði þar sem fjallað verður um Þórberg Þórðarson, ævi hans og verk.
Lesa meira
Í febrúar ár hvert fer fram afhending styrkja menningar-og tómstundanefndar, bæjarráðs, atvinnumálanefndar og skólanefndar. Einnig verður á sama tíma afhending menningarverðlauna.
Lesa meiraMenningarmiðstöðin er búin að fá afhent þjónustuhúsnæði að Álaleiru 1.
Lesa meira
Sigrún Ólafsdóttir var kjörin Hornfirðingur ársins 2008. Nýheimar og hornafjordur.is stóðu fyrir kosningu á netinu.
Lesa meira
Þá er komið að spurningakeppni framhaldskólanna Gettu betur. Hún fer fram í kvöld, miðvikudaginn 14. janúar klukkan 20:00 á Rás 2. Lið Hornfirðinga skipa þeir Björn Ármann, Einar Björn og Freyr. Hornfirðinga eru hvattir til að mæta og sjá viskuna flæða úr munnum þeirra en hægt verður að hvetja drengina í fundarsal Nýheima í kvöld.
Lesa meira
Áhugaljósmyndarasýning verður opnuð í Pakkhúsinu laugardaginn 14. febrúar og er sýningin samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvar og Sigurðar Mar. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í ljósmyndasýningunni geta sent inn myndir á netfangið gudlaugp@hornafjordur.is
Lesa meira
Ákveðið hefur verið að veita ókeypis aðgang að söfnum og sýningum yfir Humarhátíðarhelgina en þá verður mikið um að vera af menningartengdum viðburðum svo sem sýningin "Heimsókn í Hornafjörð”, listsýning Rúnu Bennýjar, saga leiklistar á Hornafirði og Hjördís Árnadóttir opnar málverkasýningu að Hafnarbraut 36.
Í bókinni Birtubrigði daganna birtir Hannes Pétursson safn persónulegra hugleiðinga og minningamynda. Á snjallan hátt og í hnitmiðuðu formi setur hann fram sjónarmið sem varða skáldskap, íslenska tungu, trú, þjóðlíf og margt fleira.
Lesa meira
Menningarmiðstöðin býður upp á námskeið og kynnisferðir fyrir unglinga og börn í sumar og er þar á meðal fuglaskoðun, rölt með Gísla Sverri þar sem hann fræðir krakkana um sögu Hafnar, Gústi Þorbjörns fer með liðið í Ál á lúruveiði og margt annað skemmtilegt verður á döfinni
Lesa meira
Alls 73 listamenn frá nítján þjóðum heimsóttu Ísland þar á meðal íslenskir listamenn búsettir erlendis og halda þessi listamenn alþjóðlega myndlistarsýningu í Pakkhúsinu á Höfn sem stendur til 28. júní. Áhugi fyrir þátttöku í sýningunni varð einnig mikill meðal listamanna sem ekki hafa komið til Íslands en vildu ólmir fá að lýsa hinu ókunnuga landi sem heillar þá og þeir þrá og ætla sér að heimsækja í náinni framtíð.
Lesa meiraMiðvikudaginn 21. maí kl. 20:00 verður kynningarfundur og myndasýning í Nýheimum tengd stofnun fuglaathugarstöðvar á Hornafirði.
Lesa meira
Harpa Njálsdóttir fjallar um "Fátækt á Íslandi við upphaf nýrrar aldar, hina duldu félagsgerð borgarsamfélagsins". Höfundur nálgast viðfangsefnið frá mörgum sjónarhornum, útfærir mat á lágmarks framfærslukostnaðir.
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að stytta opnunartíma bókasafnsins frá 1. júní og þar til í ágúst.
Lesa meira
Föstudaginn 14.febrúar voru var Arkitektastofunni Glámu/Kím veitt menningarverðlaun Hornafjarðar fyrir árið 2002 fyrir hönnun Nýheima.
Lesa meira
Skaftfellingur er kominn út og er um að ræða fimmtánda árgang héraðsritsins. Ritið er efnismeira en nokkru sinni fyrr og er nú að hluta prentað í lit. Skaftfellingur flytur að vanda fjölbreytt efni úr Austur-Skaftafellssýslu.
Lesa meira
Um síðustu jól heiðruðu starfsmenn Menningarmiðstöðar Hornafjarðar fyrrverandi safnverði Byggðasafns Austur-Skaftfellinga fyrir samstarfið á liðnum árum.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember