Þórey Guðný Sigfúsdóttir á Vegginn minn á Bókasafninu
Veggurinn minn
Málverkið sem prýðir Vegginn á Bókasafninu að þessu sinni er málað af Þórey Guðný Sigfúsdóttir. Verkið er olíumálverk og er sjálfsmynd sem hún málaði með hléum frá desember 2003 og kláraði ári seinna í desember 2004.
Þórey Hóf nám á Myndlistarbraut í Verkmenntaskólanum á Akureyri og var þar í nokkur ár en flutti svo til Reykjavíkur og útskrifaðist af Myndlistarbraut úr Fjölbrautarskólanum í Breiðholti árið 2002. Hún hefur alltaf haft áhuga á myndlist frá því að hún var barn og þegar hún var yngri sótti hún Sumarlistaskólann á Akureyri í sumarfríum sínum.
Myndin verður til sýnis á Bókasafninu næstu tvær vikurnar.


