Safnkostur
Safnkostur bókasafnsins er aðgengilegur í Landskerfi bókasafna á slóðinni: www.gegnir.is.
Auk útlána á bókum og tímaritum lánar safnið út hljóðbækur, myndbönd, mynddiska, tónlist og tungumálanámskeið. Í safninu er almenn upplýsingaþjónusta og margvísleg starfsemi fyrir börn, m.a. sögustundir.
Þar eru einnig tölvur ætlaðar lánþegum til upplýsingaleita á Internetinu. Aðstoð er veitt við heimildaleit og einnig er boðið upp á lesaðstöðu. Safnið stendur fyrir margvíslegum menningaruppákomum fyrir unga sem aldna. Víðtækt samstarf er við grunnskólana, m.a. við lestrarhvetjandi verkefni. Í handbókadeild safnsins eru til afnota á staðnum alfræðibækur, orðabækur og fleiri uppsláttarrit.
Upplýsingaþjónusta
Upplýsingaþjónusta er veitt samhliða almennri afgreiðslu eða sem persónuleg þjónusta.
Við upplýsingaþjónustu eru hjálpargögnin fyrst og fremst:
- Gegnir samskrá bókasafna á vefnum.
- hvar.is, vefur verkefnastjórnar um landsaðgang að rafrænum gagnabönkum og tímaritum.
- Gagnagrunnur Morgunblaðsins og Vefbókasafnið, samstarfsverkefni íslenskra almenningsbókasafna.
- Alfræðirit ýmsskonar
- Uppsláttarrit og handbækur
- Millisafnalán
Blöð og tímarit í áskrift
Hér eru stafrófsraðaðir listar yfir erlend og íslensk tímarit sem keypt eru á bókasafni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Dagblöð og vikublöð
24 stundir - Austurglugginn - Eystrahorn - Fiskifréttir - DV - Morgunblaðið
Viðskiptablaðið
Íslensk tímarit:
Andvari - Andrés önd - Árbók ferðafélags Íslands - Árbók hins íslenska fornleifafélags - Árnesingur - Björgun - Bliki - Blek - Bókasafnið - Börn og menning (Grunnskóli Hornafjarðar) - Börn með krabbamein - Fjármálatíðindi - Fregnir - Frímerkjablaðið - Frjáls verslun - Fyrstu skrefin - Geðvernd -
Gestgjafinn- Glettingur - Glæður (Grunnskóli Hornafjarðar) - Goðasteinn - Heilsuhringurinn - Heima er bezt - Húni - Hús og híbýli - Húsfreyjan - Ísafold - Íslenskt mál - Lifandi vísindi - Ljósálfar - Mannlíf -
Málfríður- Múlaþing - Náttúrufræðingurinn - Neo blek - Ný saga - Nýtt líf - Saga - Sagan öll - Sagnir
Skaftfellingur - Skakki turninn - Skírnir - Skógræktarblaðið - Skólavarðan (Grunnskóli Hornafjarðar) - Són – tímarit um óðfræði - Sportveiðiblaðið - Sumarhúsið og garðurinn - Sveitarstjórnarmál - Tímarit máls og menningar - Uppeldi & menntun (KHÍ) - Úlfljótur - Veiðimaðurinn - Whitch-Galdrastelpur - Þroskahjálp - Ægir - Öldrun -
Erlend tímarit
Mad - National Geograpic - Nordisk litteratur.
Bókaflokkar
Bókaflokkar (bækur um ákveðið efni).
Hér er krækjur sem vísa í safngögn um ákveðið efni sem fólk er oft að vinna með. Þetta er efni eins og einelti, að byrja í leikskóla eða skóla, flytja og margt fleira.
Fleiri efni er að finna bæði á barna og unglingasíðu vefsins, svo sem bækur um vini og vináttu, fótbolta, fíkniefni og forvarnir, galdra og töfra.
- Norræn goðafræði
- Einelti barna og unglinga
- Lífsreynsla
- Börn og tilfinningar
- Ýmislegt fyrir þau yngstu


