Svo litlir og sungu svo yndislega
“Ó þeir voru svo yndislegir og þeir voru svo litlir og sungu svo yndislega” sagði Guðlaug Hestnes þegar hún var spurð um tónleika Det Danske Drengekór í Hafnarkirkju sl. föstudagskvöld. Þeir voru svo frábærir og söngskráin fjölbreitt, þeir voru með sálma, þjóðlög, gospeltónlist, djass og svo sungu þeir á íslensku lagið, Á Sprengisandi.
Það virtist ekki vera hlutverk neinna sérstakra að syngja einsöng heldur að þeir skiptu því með sér og það hefur aldrei fyrr komið fyrir mig á tónleikum, að ég fór hreinlega að gráta þegar tveir litlir drengir gengu fram og sungu, þeir voru svo yndislegir sagði Guðlaug og bætir við “þessir drengir eru svo sannarlega landi sínu til sóma”.
Aðstoðarsöngstjórinn þeirra var fyrrum kórfélagi í Det Danske Drengekór en kórinn var stofnaður 1943. Umsjónarmaður fylgir drengjunum á ferðalögum þeirra og passar uppá þá og þeirra þarfir, einnig að þeir fái næga hreyfingu og fari í göngutúra.
Kórinn hefur getið sér góðan orðstír jafnt innan Danmerkur sem utan og hann hefur m.a. starfað við Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn og tekið þátt í mörgum óperu uppfærslum. Kórinn hefur ferðast víða um heim og haldið tónleika með fjölbreytilegri dagskrá og næsta sumar ætla þeir til Afríku.
Guðlaug segir að leiðinlegt hafi verið hvað fátt fólk hafi komið á þessa sérstöku tónleika í Hafnarkirkju og telur að orsök þess sé m.a. hvað tónleikarnir hafi verið lítið auglýstir á staðnum. Frá Hornafirði héldu drengirnir dönsku upp í Kárahnjúka þar sem þeir sungu fyrir fólkið sem þar vinnur. Síðustu tónleikar þeirra hér á landi eru 1.júlí n.k.



