Menning
Þorsteinn Sigurbergsson við stjórntækin
Þorsteinn Sigurbergsson við stjórntækin
Þorsteinn Sigurbergsson við stjórntækin

14.09.2004

Listljósasýning í Mánagarði

Næstkomandi föstudagskvöld verður frumsýning í Mánagarði á Upphafinu sem er listljósasýning eftir Þorstein Grétar Sigurbergsson. Þorsteinn sem er frá Einholti á Mýrum hefur unnið mikið með Leikfélagi Hornafjarðar, fyrst sem leikari, síðar sem leikmyndahönnuður og leikstjóri, en síðustu árin hefur hann starfað mest sem ljósahönnuður og hefur hann m.a. hannað lýsingar fyrir Leikfélag Hveragerðis, Leikfélag Rangæinga, Sjónleik, Leikfélag Fljótsdalshéraðs, Óperustúdíó Austurlands fyrir utan heimaaðilana. Þorsteinn vann ákveðið frumkvöðlastarf þegar hann samdi listljósasýninguna Sólarhring árið 2000 sem fram fór í Hlöðunni á Fiskhól.

Þorsteinn hefur fengið til liðs við sig Keith Reed til að semja tónlistina í Upphafið. Keith er með B.A. próf í kórstjórn og M.A. próf í óperusöng sem aðalgrein frá Indiana University, Bloomington. Hann hefur sungið ýmis hlutverk á í Íslensku óperunni á árunum 1989-1992 en starfaði mest í Þýskalandi árin 1992-1996. Sumarið 1997 hlaut hann Tón Vakaverðlaun Ríkisútvarpsins og söng af því tilefni með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Keith var frumkvöðull að stofnun Óperustúdíós Austurlands þar sem hann hefur stjórnað hljómsveitinni, leikstýrt o.fl.
Listljósasýningin verður frumsýnd í Mánagarði n.k. föstudagskvöld kl.21.

Senda grein

Menning

Listljósasýning í Mánagarði

14.9.2004 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica