Árlegt jóla-bókmenntakvöld í Pakkhúsinu
Næstkomandi fimmtudagskvöld, 2.des. verður hin árlega bókmenntasamkoma sem haldin er í desember á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Samkoman verður í Pakkhúsinu og hefst kl.20. Þeir rithöfundar sem þar verða og lesa úr verkum sínum verða: Auður Ólafsdóttir sem les úr bók sinni Rigning í nóvember, Haukur Ingvarsson les úr bók sinni Niðurfall og þættir af hinum dularfulla Manga, Helgi Björnsson, ritstjóri les úr bókinni Jöklaveröld, en Egill Jónsson á Seljavöllum og Sveinn Runólfsson eru einnig í ritnefnd., Margrét Lóa Jónsdóttir les úr bók sinni Laufskálafuglinn, Sigfús Bjartmarsson les úr bók sinni Andræði, Þorvaldur Þorsteinsson les úr bók sinni Blíðfinnur og svörtu teningarnir. Hulda Rós og Heiðar flytja jólalög og nokkrir nemendur Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu munu einnig flytja tónlist á milli upplestra.
Aðgangur er ókeypis þökk sé Listvinasjóði og velvilja hornfirskra fyrirtækja en gestir geta einnig styrkt samkomuna með því að kaupa sér heitt súkkulaði sem verður á boðstólnum. Vonast er eftir því að sem flestir sjái sér fært að mæta í Pakkhúsið á fimmtudag og eiga þar notalega kvöldstund í skammdeginu.
Hulda Rós og Heiðar flytja jólalög og nokkrir nemendur Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu munu einnig flytja tónlist á milli upplestra.


