Menning
Valgeir Guðjónsson
Valgeir Guðjónsson
Valgeir Guðjónsson

28.06.2005

Valgeir Guðjónsson í Nýheimum

Fimmtudaginn 30. júní næstkomandi verða tónleikar með Valgeiri Guðjónssyni og félögum í Nýheimum og eru tónleikarnir hluti af dagskrá Humarhátíðar. Á tónleikunum mun Valgeir flytja brot af því besta af tónlistarferlinum sem spannar farsælt tímabil í íslenskri tónlistarsögu. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og miðaverðið er 1.500. Valgeir Guðjónsson þarf vart að kynna en verk hans lifa góðu lífi meðal þjóðarinnar, en söngvaskáldið hefur komið víða við á tónlistarferlinum. Góð textagerð hefur oft þótt aðalmerki Valgeirs en í textum hans má skynja léttleika þar sem oft glittir í háð og lævís skírskot. Valgeir hefur löngum verið kenndur við sveitirnar þjóðþekktu Spilverk Þjóðanna og Stuðmenn og starfaði hann með þeim hljómsveitum um árabil. Ásamt því að semja texta, samdi hann einnig mörg af þekktustu lögum sveitanna.

Eftir farsæl Spilverks- og Stuðmanna ár hóf Valgeir sólóferil og hefur starfað sjálfstætt frá árinu 1988 og gefið út sólóplötur frá þeim tíma. Fyrsta sólóplata hans heitir Góðir Íslendingar og kom út 1988. Valgeir hefur átt farsælt samstarf við Sigurð Bjóla og árið 1983 gáfu þeir út plötuna Upp og niður og hefur mörgum þótt sú plata ein frumlegasta og skemmtilegasta hljómplata sem gefin hefur verið út á Íslandi, má til marks nefna lagið Bíldudals grænar baunir. Meðal annarra vinsælla dægurlaga eftir Valgeir eru t.d. Popplag í G-dúr, Slá í gegn, Ástin vex á trjánum, og mörg fleiri. Skráð tónverk Valgeirs eru hvorki meira né minna á fimmta hundrað og koma við á hljómplötum, í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og leikhúsi.

Senda grein

Menning

Valgeir Guðjónsson í Nýheimum

28.6.2005 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica