Tónskóli A-Skaft. með tónleika í Nýheimum
Sunnudaginn 2. apríl verða tónleikar í Nýheimum þar sem lengra komnir nemendur Tónskóla A-Skaft. ætla að spila metnaðafulla dagskrá. Eru þetta fyrri tónleikar af tveimur í þessum anda. Seinni tónleikarnir verða í lok apríl. Meðal annars verða á þessum tónleikum 2 klarinettuleikarar sem spila sinn hvorn kaflann úr klarinettkonsert eftir Dimler við undirleik lítillar hljómsveitar undir stjórn Philips Maguire. Einnig koma fram píanóleikarar og klassískur gítarleikur. Að lokum spilar léttsveit úr skólanum undir stjórn Gunnlaugs Þrastar, ýmsar tónlistarstefnur s.s. swing, jass og dixilandtónlist. Tónleikarnir verða í um það bil klukkustund og eru allir velkomnir.
Tónleikarnir hefjast kl: 17.00 og er aðgangur ókeypis.


