Kynning vikunnar !
Kynning vikunnar !
Harpa Njálsdóttir fjallar um "Fátækt á Íslandi við upphaf nýrrar aldar, hina duldu félagsgerð borgarsamfélagsins". Höfundur nálgast viðfangsefnið frá mörgum sjónarhornum, útfærir mat á lágmarks framfærslukostnaðir. Niðurstaða matsins er borin saman við þær lágmarksupphæðir sem almannatryggingar og félagsþjónusta sveitarfélaga veita, sýnt er fram á að talsvert vantar upp á til að fólk geti lifað því lífi sem stjórnvöld telja æskilegt lágmark. Fólk í sumum þjóðfélagshópum er því dæmt til að lifa við fátækt án auðveldra útgönguleiða. Þessi greining gefur athyglisverða sýn inn í fátæktaraðstæður á Íslandi og hvernig velferðarríkið bregst fólki í einstökum þjóðfélagshópum.



