Menning
Jólapakkhús
Jólapakkhús
Jólapakkhús

07.12.2006

Jóla-bókmenntakvöld í Pakkhúsinu í kvöld

Nú líður að jólum og hluti af jólastemningunni er að lesa góðar bækur. Eins og önnur jól er mikið af bókum sem koma nú út og af því tilefni verður jóla-bókmenntakvöld hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Þessi bókmenntakynning sem er orðinn árlegur viðburður Menningarmiðstöðvarinnar verður haldin í Pakkhúsinu sem þekkt er fyrir að skapa rétta andrúmsloftið fyrir kvöld sem þetta. Ókeypis aðgangur er að kynningunni en samkoman er styrkt af Listvinasjóði, Sparisjóði Hornafjarðar, Landsbankanum, Skinney-Þinganesi og VÍS. Á dagskrá er upplestur úr nýútkomnum bókum, tónlistaratriði og Kvennakórskonur munu selja veitingar.

Rithöfundarnir sem heimsækja okkur eru:
Kristín Steinsdóttir les úr bók sinni Á eigin vegum,
Gerður Kristný les úr bók sinni Land hinna týndu sokka,
Einar Kárason les úr bók sinni Úti að aka,
Ragnheiður Gestsdóttir les úr bók sinni Sverðberinn,
Arnþór Gunnarsson les úr bók sinni Guðni í Sunnu,
Soffía Auður Birgisdóttir les úr bók sonar síns Jökuls Valssonar, Skuldadagar,

Einnig munu rithöfundarnir heimsækja Hafnar-Nesja og Heppurskóla og HSSA

Kynningin hefst kl. 20:00

Sjáumst sem flest í Pakkhúsinu í kvöld og eigum notalega stund í skammdeginu.

Senda grein

Menning

Jóla-bókmenntakvöld í Pakkhúsinu í kvöld

7.12.2006 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica