Afhending styrkja, menningarverðlauna og umhverfisverðlauna Hornafjarðar
Afhending styrkja, menningarverðlauna og umhverfisverðlauna fer fram við athöfn í Nýheimum föstudaginn 9. febrúar. Send hafa verið út bréf til styrkhafa og þeirra sem tilefndir eru til menningarverðlauna en það eru: Hornfirska skemmtifélagið fyrir metnaðarfullt starf og dagskrárnar Blúshátíð og American Graffiti, Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson tónlistarkennari fyrir starf að tónlistarmálum, Þorbjörg Arnórsdóttir og Fjölnir Torfason fyrir Þórbergssetur, Sveinbjörn Imsland fyrir frumkvöðlastarf við miðlun m.a. menningarefnis innan og utan Sveitarfélagsins, Pálína Þorsteinsdóttir skólastjóri fyrir markvissa menningarstarfsemi í skólastarfi, Þórbergssetur, fyrir þá uppbyggingu sem varð með samstarfi fjölmargra aðila innan og utan sveitarfélagsins.
Athöfnin byrjar kl. 17:00 og eru allir velkomnir.


