Menning
Stebbi & Eyfi
Stebbi & Eyfi
Stebbi & Eyfi

10.04.2007

Stebbi og Eyfi með tónleika á Hótel Höfn á fimmtudagskvöld

Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson hafa verið á miklum túr um Ísland undanfarnar vikur og er tilgangurinn ný geislaplata þeirra félaga "Nokkrar notalegar ábreiður", sem kom út fyrir síðustu jól. Að sögn Eyfa þá hafa viðtökurnar verið með miklum ólíkindum og hafa þeir félagar fyllt hús nánast á hverjum viðkomustað og stemmning verið mikil. Þeir Stebbi og Eyfi hafa starfað saman í 19 ár, en aðeins núna fyrst gefið út sína fyrstu plötu saman. Þeir félagar eru þekktir fyrir margar perlur íslenskrar dægurtónlistar, lög eins og: "Nína", "Líf", "Í fylgsnum hjartans", "Álfheiður Björk", "Dagar", "Danska lagið", "Ég lifi í draumi", "Hjá þér", "Undir þínum áhrifum" o.m.fl. Stebbi og Eyfi verða með tónleika á Hótel Höfn fimmtudagskvöldið 12. apríl n.k. og hefjast tónleikarnir kl. 20.30.

Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá sér fara. Forsölumiða er hægt að nálgast í símum 533 3931 og 899 6669

Senda grein

Menning

Stebbi og Eyfi með tónleika á Hótel Höfn á fimmtudagskvöld

10.4.2007 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica