Tríó Reynis Sigurðssonar með tónleika í Pakkhúsinu í næstu viku
Tríó Reynis Sigurðssonar (TRES) heldur tónleika á vegum Listvinasjóðs Hornafjarðar í Pakkhúsinu sunnudaginn 22.apríl n.k. Tríóið skipa Reynir Sigurðsson á víbrafónn, Jón Páll Bjarnason á gítar og Gunnar Hrafnsson á bassa. Á tónleikunum verða jazz-skotnar útsetningar á lögum eftir Sigfús Halldórsson, Jón Múla Árnason, Atla Heimi, Oddgeir Kristjánsson. Einnig verk eftir Astor Piazzolla, Joseph Haydn, Gerry Mulligan, John Lewis, Antonio Carlos Jobim, Johann Sebastian Bach og Charlie Parker. Tónleikarnir hefjast kl.20:30 og er aðgangseyrir kr.1500. Veitingar verða á vegum kvennakórs Hornafjarðar. Tónleikarnir eru styrktir af F.Í.T. og F.Í.H
Þeir félagar í TRES hafa leikið saman í nokkur ár og komið víða fram. Gunnar Hrafnsson er með B.M. gráðu í tónlist frá Berklee College of Music, Boston. Hann hefur verið mikilvirkur í íslensku tónlistarlífi og leikið með fjölda innlendra og erlendra tónlistarmanna á tónleikum og hljóðritunum, tekið þátt í leiksýningum, komið fram í útvarpi og sjónvarpi og ennfremur starfað sem tónlistarkennari við Tónlistarskóla FÍH og Listaháskóla Íslands. Gunnar hefur verið fastur meðlimur Stórsveitar Reykjavíkur um árabil og til höfundaverka hans má telja tónlist í leiksýninguna SVIK og tónlistarsýninguna ?Heimsreisa Höllu? sem farið hefur víða um lönd.
Jón Páll Bjarnason er einn best þekkti jazzgítarleikari Íslands fyrr og síðar. Jón fæddist á Seyðisfirði 1938 en fluttist snemma til Reykjavíkur. Hann byrjaði ungur að leika jazz og þrátt fyrir að hafa komið víða við í tónlistinni hefur jazzinn alltaf staðið honum næst. Jón bjó og lék í Svíþjóð um tíu ára skeið en fluttist þaðan til Los Angeles þar sem hann bjó í 17 ár. Þar lék hann með ýmsum þekktum hljómsveitum, meðal annars Buddy Rich stórsveitinni. Jón flutti heim til Íslands árið 2000 og stundar nú gítarkennslu auk þess að koma fram með ýmsum jazzleikurum, meðal annars með Útlendingahersveitinni.
Reynir Sigurðsson lauk tónmenntakennaraprófi frá tónlistarskólanum í Reykjavík 1965. Starfaði um skeið sem tónmenntakennari í Álftamýrarskóla. Stundaði nám í slagverksleik í Stokkhólmi 1968-69.
Fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit Íslands 1969-2001. Lék á sama tíma einnig í Þjóðleikhúsinu, Íslensku óperunni og tók þátt í kammertónlist af ýmsu tagi. Hefur leikið með eigin og annarra dans og jass-sveitum frá 1957 og hljóðritað ýmiskonar tónlist fyrir útvarp, sjónvarp og hljómplötur frá sama tíma. Tónleikaferðir með Sinfóníuhljómsveit Íslands og öðrum hópum um Evrópu, Bandaríkin og Kína. Kennsla í tónmennt og slagverksleik, harmónikuleik og samspili í Reykjavík og nágrenni frá 1965.



