Menning
Þórbergssetur
Þórbergssetur
Innanhúss á Þórbergssetri

18.04.2007

Mikið um dýrðir að Hala í Suðursveit næstu helgi

Næstu helgi þ.e. helgina 20.-22. apríl standa bókmennta- og framsagnarhópur félagsmiðstöðvarinnar Hæðargarði 31 fyrir menningarferð að Hala í Suðursveit ásamt Tungubrjótum félagsmiðstöðvarinnar Dalbrautar 18-20 og bókmenntaklúbb Hana-nú Kópavogi sem starfar á vegum Bókasafns Kópavogs. Þessir hópar hafa verið að lesa og kynna sér verk og ævi Þórbergs Þórðarsonar í vetur. Hluti þessa hóps stendur fyrir opinberri dagskrá um Þórberg Þórðarson að Hala laugardagskvöldið 21. apríl sem hefst kl. 20.30. Dagskránni stýra leikararnir Soffía Jakobsdóttir og Guðný Helgadóttir. Alls taka þátt í ferðinni um 50 manns og ljóst er að það verður mikið um dýrðir að Hala í Suðursveit næstu helgi. Skaftfellingar eru velkomnir að koma í Þórbergssetur á laugardagskvöldið að njóta dagskrárinnar með gestunum.

Kaffi verður í boði og opið inn á sýningar í Þórbergssetri.
Allir velkomnir

Sjá www.thorbergur.is

Senda grein

Menning

Mikið um dýrðir að Hala í Suðursveit næstu helgi

18.4.2007 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica