Menning
Kvískerjasjóður
Kvískerjasjóður
Sex verkefni fengu úthlutað styrk úr Kvískerjasjóði (Mynd:Gunni&Lóa)

24.04.2007

Sex verkefni fengu úthlutað styrk úr Kvískerjasjóði

Kvískerjasjóður var stofnaður árið 2003 af Umhverfisráðuneytinu til heiðurs systkinunum á Kvískerjum fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur Skaftafellssýslu. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúru og menningu í Austur Skaftafellssýslu. Markmiðum skal náð með veitingu rannsóknarstyrkja til stofnana og einstaklinga. Frá stofnun hans hefur verið úthlutað þrisvar sinnum úr sjóðnum til 14 verkefna. Þarna er um fjölbreytt og metnaðarfull verkefni að ræða og ljóst er að þau eru bæði mikilvægt framlag inn í vísindaheiminn en ekki síður munu þau gagnast til þess að efla og styrkja framþróun byggðar í Austur Skaftafellssýslu. Innan tíðar verður opnuð vefsíða Kvískerjasjóðs og þar verður m.a. þessum verkefnum og örðum þeim sem sjóðurinn kemur til með að styrkja á komandi árum gerð skil eftir því sem mögulegt er og í samráði við þá sem verkefnin vinna.

Nú var úthlutað úr Kvískerjasjóði í fjórða sinn. Að þessu sinni bárust 10 metnaðarfullar umsóknir og var samanlögð upphæð umsókna á áttundu milljón króna og hlutu sex verkefni styrk að þessu sinni. Afhending styrkja fór að þessu sinni fram í mjög fjölmennu afmælishófi sem Öræfingar og aðrir vinir Kvískerjaheimilisins fyrr og nú héldu til heiðurs þeim bræðrum Sigurði, Helga og Hálfdáni um helgina. Þar var jafnframt tilkynnt um aukið framlag í sjóðinn frá Ríkisstjórn að upphæð ein milljón króna og eitthundrað þúsund króna framlag frá Bæjarstjórn Hornafjarðar. Höfuðstóll sjóðsins við stofnun var 25 milljónir króna en er nú tæpar 30 milljónir.

Verkefnin sem hlutu stuðning að þessu sinni eru:

Eldgos í Öræfa jökli 1362. Hér er um að ræða framhaldsstyrk til Dr. Ármanns Höskuldssonar við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands að upphæð 500 þúsund. Rannsóknir á framgangi eldgossins í Öræfajökli 1362 voru hafnar sumarið 2006 í tengslum við uppgröft eyðibýlisins Bæjar í Öræfasveit. Rannsóknin beinist að því að skilja hvernig eldgosið 1362 gekk fyrir sig með því að fara vel í gegnum lagsyrpur sem hafa myndast i eldgosinu til þess að átta sig á framgangi gossins.

Munnleg hefð. Menningarmiðstöð Hornafjarðar í samstarfi við Háskólasetur á Hornafirði og Árnastofnun hlýtur styrk að upphæð 450 þúsund til þess að rita upp af hljóðsnældum upptökur af frásögnum, söngvum og viðtölum við einstaklinga úr Austur Skaftafellssýslu. Meginmarkmið verkefnisins er að sá mikli fróðleikur sem hér um ræðir verði aðgengilegur fræðimönnum, almenningi og skólafólki í sem fjölbreytilegustu formi og með margvíslegum leitarmöguleikum.

Staðbundin óveður við Kvísker í Öræfum. Hálfdán Ágústsson jarðeðlisfræðingur og doktorsnemi hlýtur styrk að upphæð 400 þúsund til að rannsaka staðbundin óveður við Kvísker í Öræfum. Óveðrin eru tíð og afar hvass vindur veldur m.a. reglulega truflunum á umferð um þjóðveginn. Mælingar á veðri ásamt lofthjúpsreikningum í þéttriðnu neti verða notaðar til að greina eðli óveðranna og varpa ljósi á mikilvæga þætti í myndun þeirra. Ætla má að samspil lofthjúpsins og fjalla leiki hér lykilhlutverk.

Tengsl loftslags- og jöklabreytinga suðaustan í Vatnajökli. Hrafnhildur Hannesdóttir jarðfræðingur og doktorsnemi hlýtur styrk að upphæð 700 þúsund. Ísland er á mörkum kaldra norðlægra og hlýrra suðlægra strauma í lofti og hafi. Gögn um jöklabreytingar á Íslandi eru því mikilvæg vísbending um hnattrænar loftslagsbreytingar. Skriðjöklar í Austur-Skaftafellsýslu eru á hlýjasta og úrkomumesta svæði landsins, bregðast hratt við breytingum í afkomu og velta í búskap er með því mesta sem gerist á jörðinni. Hvergi hefur sambúð manns og jökuls verið eins náin. Saga jöklabreytinga á fyrri öldum er þar vel skráð, þekking á landslagi undir jöklunum góð og aðstæður því einstakar til rannsókna á viðbrögðum jökla við loftslagsbreytingum. Könnun á viðbrögðum jökla við loftslagsbreytingum er mikilvæg í hnattrænu tilliti og aðstæður á rannsóknarsvæðinu góðar til slíkra rannsókna

Landnám smádýra í jökulskerjum. Maríu Ingimarsdóttur líffræðingur og doktorsnemi hlýtur styrk að upphæð 410 þúsund til kaupa á sjálfvirkri veðurstöð, sérhannaðri til nota við erfiðar aðstæður t.d. á jöklum. Markmið rannsóknarinnar eru að ákvarða þær breytingar sem verða á tegundasamsetningu, þéttleika og fjölbreytni smádýra í og á jarðvegi við framvindu á landi sem kemur undan jökli. Og að ákvarða hvort og þá að hvaða leyti jökull hindrar landnám smádýra á nýju landi. loftslagsbreytingum.

Jökla- vatna- jarðefna og örverufræðileg rannsókn á Skaftárkötlum. Ábyrgðaraðilar þess verkefnis eru Dr. Þorsteinn Þorsteinsson jöklafræðingur og Dr. Tómas Jóhannesson jarðeðlisfræðingur í samstarfi við fjölmarga aðila innanlands og erlendis. Styrkur að upphæð 540 þúsund er ætlaður til kaupa á nýjum hitanemastreng. Grímsvötn eru þekktust stöðuvatnanna undir Vatnajökli og jökulhlaupin sem þar eiga upptök sín hafa haft mikil áhrif á náttúrufar og mannlíf í Skaftafellssýslum. Almennt er nú álitið að rennslisferlar Skaftárhlaupa verði ekki skýrðir með þeim fræðilegu líkönum sem beitt hefur verið til að skýra hegðun flestra Grímsvatnahlaupa. Hiti hlaupvatns við upphaf hlaupa er mikilvægur þáttur og nauðsynlegt að afla gagna um hann.

Senda grein

Menning

Sex verkefni fengu úthlutað styrk úr Kvískerjasjóði

24.4.2007 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica