Jón Ólafsson með tónleika í Nýheimum í næstu viku
Tónlistar- og sjónvarpsmaðurinn Jón Ólafsson gerir víðreist um landið á næstu vikum í tilefni af útkomu nýs geisladisks. Hann hyggst meðal annars spila í Nýheimum, miðvikudaginn 16.maí n.k. Diskurinn heitir Hagamelur og kemur í búðir um miðjan maí. Jón hefur leikinn á Eskifirði og endar 14.júní með tónleikum í Reykjavík. Árið 2004 kom Jón hingað á Hornafjörð og hélt eftirminnilega tónleika í Nýheimum fyrir troðfullu húsi. Vonandi endurtaka Hornfirðingar leikinn og fjölmenna þegar Jón tekur lagið fyrir okkur í Nýheimum, miðvikudaginn 16.maí.
Tónleikarnir hefjast kl 20.30 og kostar 1500 kr. inn.



