Menning
Skaftfellingafélagðið
Skaftfellingafélagðið
Skaftfellingafélagðið (Mynd:SMS)
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

21.11.2007

Myndasýning hjá Skaftfellingafélaginu og Hornafjarðarmannamót

Á morgun fimmtudaginn 22. nóvember kl. 20:00 verður myndasýning í hjá Skaftfellingafélaginu í Skaftfellingabúð Laugavegi 178. Myndefnið verður úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum. Gamlar myndir frá Ara og Guðjóni Jónssonum og Helga Arasyni Fagurhólsmýri; Skýringar frá Guðjóni Jónssyni og Jón Guðna Arasyni, Guðjón þekkir vel fyrstu ár Skaftfellingafélagsins og Skógræktina. Gamlar myndir frá ættarmóti, Stefán Bjarnason frá Hofi segir frá og Gunnþóra Gunnarsdóttir Hnappavöllum. Myndir frá Jakobi Guðlaugssyni. Fjöruferðir og fleiri myndir Skaftafelli og Skeiðarásandi og umhverfi. Skýringar frá Heiðari Jakobssyni og/eða Sigurði Jakobssyni. Seinasta fimmtudag, 15. nóvember var spilakvöld hjá Skaftfellingafélaginu og kom þá Sigurpáll Ingibergsson og kenndi Hornafjarðarmót. Kennslan gekk með ágætum og var haldið mót og lauk með því að 3 hæstu voru leystir út með viðurkenningum.

Í byrjun þorra 26. janúar er síðan þorrablót hjá Skaftfellingafélaginu, auglýst nánar síðar. Eftir áramót verður annað myndakvöld og er þá áætlað að hafa myndir tengdar ferðalögum og framkvæmdum á milli sýsla, myndir frá fyrstu bílferðum yfir Skeiðarársand og framkvæmdum við brúargerð.

Senda grein

Menning

Myndasýning hjá Skaftfellingafélaginu og Hornafjarðarmannamót

21.11.2007 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica