Menning
Sótt fram
Sótt fram
Sótt fram

30.11.2007

SÓTT FRAM, bók Sigurðar Björnssonar á Kvískerjum kynnt á bókamessu í Þórbergssetri

Sunnudaginn 2. desember, hinn fyrsta í aðventu verður áhugaverð bókakynning í Þórbergssetri á Hala.
Auk kynningar á bók Péturs Gunnarssonar um Þórberg Þórðarson verða margar áhugaverðar bækur kynntar er tengjast umhverfi og sögu okkar Skaftfellinga. Sérstök athygli er vakin á kynningu Hjörleifs Guttormssonar á bókinni Skaftafell í Öræfum - Íslands þúsund ár eftir Jack D. Ives. Í bókinni koma m.a. fram hugleiðingar Jack D Ives um þjóðgarða og starfsemi þeirra. Jack D. Ives sagði í blaðaviðtali fyrir nokkrum árum að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs væri í raun heimsviðburður, sérstaða þessa svæðis sé slík og að hvergi í heiminum sé til heildstæð saga mannlífs sem hefur þróast í svo sterku sambýli við eld og ís eins og í Skaftafellssýslum.

Áhugafólk um sögu og náttúrufræði og stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs ætti því ekki að láta þetta einstaka tækifæri fram hjá sér fara.

Einnig verður kynnt bók Sigurðar Björnssonar á Kvískerjum, - Sótt fram. Menningarmiðstöð Hornafjarðar gefur bókina út og stendur fyrir kynningu á henni. Það verður forvitnilegt að fá í hendur bók þessa aldna fræðimanns sem hefur lifað tímanna tvenna og séð meiri breytingar í íslensku þjóðlífi en nokkur kynslóð mun eiga kost á að upplifa fyrr eða síðar.

Vonandi verður veðrið gott þannig að sveitungar og Hafnarmenn sjái sér fært að skreppa á bókamessu í Þórbergssetri sem hefst kl 14:00 Í boði verður einnig kaffihlaðborð sem kostar kr. 1000 Allir eru velkomnir.

Senda grein

Menning

SÓTT FRAM, bók Sigurðar Björnssonar á Kvískerjum kynnt á bókamessu í Þórbergssetri

30.11.2007 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica