Menning
Páskaeggjamálun
Páskaeggjamálun
Páskaeggjamálun
Mynd 1 af 2
1 2

19.03.2008

Fjör í páskaeggjamálun

Síðastliðin mánudag var mikið fjör í Menningarmiðstöðinni þegar fjöldi barna kom til að mála á páskaegg og búa til páskaunga úr pappír, síðan var skrautið hengt á trjágreinar (víði, birki o.fl. ) sem klipptar höfðu verið í Einarslundi.
Börnin nutu aðstoðar foreldra og starfsmanna Menningarmiðstöðvarinnar.
Starfsmenn voru búnir að undirbúa málunina áður með því að blása úr 60 eggjum og grunnmála. Mætingin var framar öllum vonum, nær 50 börn mættu og þurftu starfsmenn að taka til við að blása úr fleiri eggjum. Einstaka egg brotnaði við málun en þá var bara að byrja upp á nýtt. Börnin sýndu eindæma þolinmæði gagnvart því að þurfa að bíða eftir að komast að við að mála og líma páskaungana sína. Allt gekk vel og allir fóru sælir heim með sitt páskaskraut.
Páskaeggjamálunin var fyrsti liður á páskadagskrá Menningarmiðstöðvarinnar en annað á dagskránni er að Bókamarkaðurinn margrómaði og sívinsæli verður opnaður á Jöklasýningu á Föstudaginn langa. Verðið er aðeins kr. 100.- á bók. Opið verður á Jöklasýningu og Bókamarkaði frá kl. 13.00-16.00 föstudag, laugardag og sunnudag. Ókeypis aðgangur er á Jöklasýningu.
Í Nýheimum er opin sýning á ljósmyndum úr safni Eystrahorns, en blaðið er 25 ára um þessar mundir. Einnig er í Nýheimum kynning á staðsetningu væntanlegs knattspyrnuhúss. Opið er í Nýheimum föstudag, laugardag og sunnudag frá kl. 13.00 -16.00.
Á Föstudaginn langa verður farið í Eskey undir leiðsögn staðkunnugra manna og er mæting við Eskey kl. 14.00.
Starfsmenn Menningarmiðstöðvar óska öllum gleðilegra páska og vonast til að sjá sem flesta.

Senda grein

Menning

Fjör í páskaeggjamálun

19.3.2008 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica