Menning
Söngfélag Skaftfellinga
Söngfélag Skaftfellinga
Söngfélag Skaftfellinga

17.04.2008

Lokaæfingar verða í sjoppum á leiðinni og í rútunni

Söngfélag Skaftfellinga á austurleið

Söngfélag Skaftfellinga leggur nú upp í sína árlegu vorferð föstudaginn 18. apríl, sem að þessu sinni er heitið til Hornafjarðar. Lokaæfingar verða í sjoppum á leiðinni og í rútunni ef þurfa þykir. Söngfélagar hafa haft það fyrir sið að líta inn á hjúkrunarheimili sem á vegi verða á ferðalögum sínum. Fyrst verður sungið fyrir vistmenn á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu á Kirkjubæjarklaustri síðdegis á föstudag. Eftir súpuspón hjá Kalla á Hótel Klaustri verður haldið áfram í Hótel Skaftafell þar sem gist verður í tvær nætur. Fyrirsjáanlegt er að taka þurfi aukaæfingar fram eftir kvöldi á föstudag, en upp skal þó rísa árla á laugardag og búast til ferðar austur á Höfn.

Áformað er að syngja fyrir vistmenn á hjúkrunarheimilinu á Höfn um hádegisbil. Eftir það verður skálmað í Hafnarkirkju og þar bíða ferðalanga góðgjörðir Samkórs Hornafjarðar.
Tónleikarnir verða í Hafnarkirkju laugardaginn 19. apríl, kl. 15:00. Eftir þá væri gaman fyrir hornfirskt söngfólk, ættingja og aðra í heimabyggð að hitta kórmeðlimi og verður stefnan tekin á Hótel Höfn í kaffisopa eftir sönginn.

Um kvöldið verður snæddur kvöldverður í Hótel Skaftafelli og í framhaldinu teknar léttar söngsveiflur. Öræfingr og aðrir sýslungar úr vestri og austri eru velkomnir. Haldið verður heim á leið um hádegi á sunnudag og sungið fyrir vistmenn Hjallatúns í Vík á heimleiðinni.
Friðrik Vignir Stefánsson tók við stjórn kórsins á haustdögum og hefur haldið sprotanum á lofti af miklum krafti. Tónlistarmaðurinn Vignir Þór Stefánsson leikur undir söng 27 kórfélaga.
Söngfélagið vonast til að sjá sem flesta á tónleikunum á Höfn kl. 15 á laugardag.

Senda grein

Menning

Lokaæfingar verða í sjoppum á leiðinni og í rútunni

Söngfélag Skaftfellinga á austurleið

17.4.2008 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica