Vortónleikar Samkórs Hornafjarðar
Samkórinn er blandaður kór sem syngur við allar kirkjulegar athafnir allt árið um kring og eru þær
margar þegar allt er talið.
Efnisskráin í kvöld er fjölbreytt,afrískir og suðuramerískir söngvar,negrasálmar og margt fleira.
Stjórnandinn er Kristín Jóhannesdóttir organisti og eru kórfélagar 30 talsins.Kórfólkið reynir að fara í
söngferð annað hvert ár og aflar fjár til þess með tónleikum í kirkjunni,skemmtikvöldum
í pakkhúsinu með söng og kræsingum,kaffisölu í slysavarnahúsinu laugardag fyrir sjómannadag og hlutaveltu
í Miðbæ í desember.
Söngurinn hefst stundvíslega kl 20 og aðgangseyrir er 1000 kr.
Allir eru hjartanlega velkomnir og býðst að eiga góða stund í kirkjunni
í góðum félagsskap, við ljúfa tóna.


