Menning
Gömul sveitablöð
Gömul sveitablöð
Gömul sveitablöð
Mynd 1 af 2
1 2

16.09.2008

Sýning á gömlum sveitablöðum

Á bókasafninu eru nú til sýnis handskrifuð sveitablöð frá fyrri hluta síðustu aldar. Mikil gróska var í útgáfu slíkra blaða á Íslandi á þessum árum og voru Austur-Skaftfellingar engir eftirbátar annarra landsmanna í þeim efnum. Gefin voru út blöð í hverjum hreppi, flest í Nesjum, enda Nesjahreppur langfjölmennastur með Höfn innanborðs á þeim tíma.
Í vörslu Héraðsskjalasafnsins eru til eftirtalin handskrifuð blöð:
Baldur, Nesjum
Björk, Nesjum
Hvöt, Nesjum
Velvakandi, Nesjum
Vísir, Nesjum
Vorboði, Suðursveit
Þór, Suðursveit
Vestmar, Mýrum
Gestur, Lóni
Hringur, Lóni
Félagsvinurinn, Öræfum
Leiftur, Höfn.
Blöðin voru gefin út í einu, eða stundum tveimur, eintökum sem ýmist voru látin ganga milli bæja eða lesin upp á fundum.
Mikið vantar uppá að Héraðsskjalasafnið eigi öll eintökin sem komu út af þessum blöðum. Ef einhver á í fórum sínum eitthvað af þeim, væri vitneskja um það vel þegin. Þessi blöð geyma mikinn fróðleik og þau eru merkilegur menningararfur sem ekki má glatast.

Senda grein

Menning

Sýning á gömlum sveitablöðum

16.9.2008 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica