Hornfirðingar keppa í Útsvari í kvöld
Í kvöld, föstudagskvöldið 3.október, keppa Hornfirðingar í hinum vinsæla spurningaþætti Útsvari í Sjónvarpinu.
Það er skemmtileg tilviljun að á móti þeim keppa Seltirningar en þeir voru einmitt fyrri mótherjar þeirra í Útsvari á síðasta ári. Þá unnu Hornfirðingar með 66 stigum gegn 48 í æsispennandi keppni.
Keppendur okkar að þessu sinni verða: Sigurður Örn Hannesson skjalavörður, Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur og Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri.
Þátturinn er í beinni útsendingu og hefst kl. 20.15 strax á eftir Kastlljósi.
Hornfirðingar senda liðinu bestu kveðjur



