Menning
Bókagjöf
Bókagjöf
Bókagjöf
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

17.10.2008

Bókagjöf til leikskólabarna á Hornafirði

Krakkarnir á Lönguhólum voru hressir og kátir þegar starfsmenn Menningarmiðstöðvarinnar heimsóttu þá í morgun. Gestirnir komu færandi hendi með bækur um Glingló, Dabba og Rex. Hvert barn fékk tvær bækur en höfundur bókanna, Selma Hrönn Maríudóttir, hafði haft veður af heimsókn leikskólanna á sýninguna "Þetta vilja börnin sjá!".
Gjöfinni fylgdu bestu kveðjur frá Gröllurunum í Sandgerði til leikskólabarnanna á Hornafirði með von um að þau hafi gaman af.

Undanfarin tvö ár hefur Menningarmiðstöðin sett upp sýninguna "Þetta vilja börnin sjá!"
Myndirnar á sýningunum eru úr íslenskum barnabókum sem gefnar voru út árin 2006 og 2007.
Nú í haust kom boð frá höfundi bókanna um að gefa leikskólabörnum á Hornafirði eintak af báðum bókunum. Það er matreiðsluklúbburinn Freisting.is sem styrkir gjöfina en á vef þeirra eru einfaldar uppskriftir sem eru ætlaðar börnum og hvetjum við alla til að skoða síðuna og eins grallarar.is. Myndirnar í bókunum eru eftir Brynhildi Jennýju Bjarnadóttur.
Í morgun fóru semsagt starfsmenn Menningarmiðstöðvarinnar í heimsókn á Lönguhóla og afhentu bækurnar, og var þeim vel tekið.
Höfundur bókanna eru búsettur í Sandgerði og segir sögupersónur bókanna eiga sér lifandi fyrirmyndir í Sandgerði. Kisurnar Glingló og Dabbi og hundurinn Rex eru rammíslensk og uppátækjasöm. Þau fara m.a. í bryggjuveiði, fjöruferð og eggjaskoðunarferð og lenda í ýmsum ævintýrum. Sögurnar eru í vísnaformi, vel til þess fallnar að auka orðaforða barna, en einnig sagðar á einföldu máli fyrir yngstu lesendurna.
Glingló, Dabbi, Rex og félagar eiga heimsíðu sem heitir grallarar.is. Þar má finna ýmsa skemmtilega leiki, vísnahorn, litabók, uppskriftir og margt fleira. Skemmtileg afþreying fyrir alla grallara.
Eftir helgina heimsækja starfsmenn Menningarmiðstöðvarinnar leikskólann Krakkakot og afhenda þeim bækurnar og svo fær leikskólinn í Hofgarði sendingu frá Glingló, Dabba og Rex.
Hornfirðingar vilja færa höfundinum og matreiðsluklúbbnum Freisting.is bestu þakkir fyrir skemmtilega gjöf.

Senda grein

Menning

Bókagjöf til leikskólabarna á Hornafirði

17.10.2008 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica