Bókasafn Menningarmiðstöðvar eykur þjónustu við sjónskerta og lesblinda.
(Ath! til að stækka skjátextann er hægt að halda niðri Ctrl hnappnum á lyklaborðinu og skrolla upp með músinni)
Bókasafn MMH hefur gert samning við Blindrabókasafn Íslands og eykur nú framboð á hljóðbókum fyrir sjónskerta og lesblinda.
Samkvæmt gerðum samningi þurfum við að fara eftir reglum Blindarbókasafns varðandi útlán og vottorð. Lesblindir fá vottorð hjá námráðsgjöfum, kennurum og öðrum fagaðilum. Lesblindir eldri en 30 ára geta komið á safnið án vottorðs og rætt við bókaverði og þeir sem eru orðnir 80 ára þurfa ekki vottorð. Sjónskertir fá vottorð hjá augnlækni.
Við viljum benda fólki á að hægt er að fá lesblindugreiningu hjá Ragnhildi Jónsdóttir hjá Þekkingarneti Austurlands í Nýheimum.
Hljóðbækur Blindrabókasafns eru allar á geisladiskum á MP3/Daisy-formi.
Þetta þýðir að til þess að geta hlustað á bækurnar þarf notandinn að hafa aðgang að MP3 afspilunartæki, DVD-tæki eða tölvu.
Nú eru nýkomnir 50 titlar á bókasafnið en þeim verður síðan skipt út reglulega og stefnt er að því að fá jólabækurnar í hús fljótlega. Við bendum einnig á heimasíðu Blindrabókasafnins www.bbi.is en þar má finna lista yfir allar hljóðbækur í eigu safnsins.
Frekari upplýsingar veita starfsmenn á bókasafninu.



