Frostrósir á Höfn með fríðu föruneyti
Á föstudaginn 5. desember munu Frostrósir koma til Hornafjarðar og halda Jólatónleika í Íþróttahúsinu. Frostrósahópurinn er á ferð um landið eins og í fyrra og koma fram í kirkjum og samkomuhúsum í nokkrum af helstu kaupstöðum landsins. Í fyrra fengu þau einstakar viðtökur með tvísettum tónleikum á öllum stöðum og allsstaðar komust færri að en vildu.
Tónleikarnir verða enn glæsilegri nú í ár með enn stærri hljómsveit og veglegri umgjörð. Það eru þau Margrét Eir, Hera Björk, Guðrún Árný, Jóhann Friðgeir og Edgar Smári, sem færa landsmönnum jólin í ár í fylgd fjölda hljóðfæraleikara og barnakórs. Efnisskráin er einkar glæsileg og inniheldur vinsælustu lög Frostrósa sem og aðrar helstu perlur jólatónlistarinnar. Húsið opnar klukkan 20:30, en tónleikarnir byrja klukkan 21:00 og er miðaverð 3490 krónur. Frá og með 2.desember verður hægt að kaupa miða á Pósthúsinu og þeir sem hafa þá þegar keypt sér miða á midi.is geta nálgast keypta miða þar líka. Þar sem að Pósthúsið lokar klukkan 16:30 verður hægt að nálgast keypta miða í Íþróttahúsinu eftir þann tíma og er fólk hvatt til að gera það áður en mætt er á tónleikana til að forðast biðraðir



