Menning
Þórbergur Þórðarson
Þórbergur Þórðarson
Þórbergur Þórðarson

23.02.2009

Námskeið um Þórberg Þórðarson og verk hans

Háskólasetrið á Höfn og Þórbergssetur bjóða öllum Hornfirðingum og íbúum nærsveita að taka þátt í opnu námskeiði þar sem fjallað verður um Þórberg Þórðarson, ævi hans og verk. Annar fyrirlestur námskeiðisins verður í Pakkhúsinu þriðjudagskvöldið 24. febrúar kl.20:00. Þar verður fjallað um tímamótaverk í íslenskum bókmenntum , Bréf til Láru,  sem kom út árið 1924. Pétur Gunnarsson rithöfundur hefur haft þau orð um Bréf til Láru að þar hafi verið á ferðinni ,,eitt merkasta gegnumbrot íslenskrar bókmenntasögu” . Einnig verður fjallað um ýmsa pistla og ritgerðir Þórbergs. Gestir námskeiðisins geta einnig notað tækifærið og skoðað ljósmyndasýningu áhugaljósmyndara á Hornafirði sem nú hefur verið opnuð í Pakkhúsinu.
Allir eru velkomnir og fólki frjálst að mæta í eitt eða fleiri skipti.
Stjórnendur námskeiðsins eru Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur og sérfræðingur á Háskólasetrinu, og Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs.

Senda grein

Menning

Námskeið um Þórberg Þórðarson og verk hans

23.2.2009 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica