Menning
Þórbergur Þórðarson
Þórbergur Þórðarson
Þórbergur Þórðarson

17.03.2009

Námskeið um Þórberg Þórðarson og verk hans

Háskólasetrið á Höfn og Þórbergssetur bjóða öllum Hornfirðingum og íbúum nærsveita að taka þátt í opnu námskeiði þar sem fjallað verður um Þórberg Þórðarson, ævi hans og verk. Þriðji fyrirlestur námskeiðisins verður í Pakkhúsinu þriðjudagskvöldið 17.mars kl.20:00. Þar verður fjallað um þær bækur Þórbergs sem hafa notið hvað mestra vinsælda, Ofvitann og  Íslenskan aðal. Eftir margra ára þögn eða frá árinu 1924 til ársins 1938, -  kom loksins út ný bók eftir Þórberg Þórðarson, og enn var brotið blað. Ný bókmenntagrein svokallaðar skáldævisögur litu dagsins ljós í íslenskri bókmenntasögu. Í grein um Íslenskan aðal á Þórbergsvefnum www.thorbergur.is segir Soffía Auður Birgisdóttir. ,, Ég held því fram að verkið sé dæmi um bókmenntategund sem fæðist fullþroskuð í verkum Þórbergs (eftir ákveðinn meðgöngutíma í íslenskri bókmenntasögu) og hefur æ síðan lifað og dafnað með öðrum íslenskum bókmenntum þótt staða hennar hafi verið jaðarstaða, staða hins "óhreina" forms eða blendings sem hefur kannski einmitt fyrir þær sakir lent utangarðs í bókmenntaumræðunni og fræðimennskunni.”
Það má því segja að Soffía Auður hafi verið frumkvöðull í að benda á þá nýjung sem þessi bókmenntaverk Þórbergs voru í íslenskum bókmenntum og því verður forvitnilegt að hlýða á fyrirlestur hennar um þau á námskeiðinu.
Allir eru velkomir

Senda grein

Menning

Námskeið um Þórberg Þórðarson og verk hans

17.3.2009 Menning

Þetta vefsvæði byggir á Eplica