Barnastarfið komið í gang
Í gær var farið í fornleifaferð
Nú er sumarbarnastarfið hjá Menningarmiðstöðinni komið í fullan gang. Er þetta metnaðarfullt starf sem starfsfólkið á Menningarmiðstöðinni vinnur með börnin og taka allir þátt. Í ár er þemað sögusumarið- lærum um sögu Hafnar og verður smá fræðsla um um sögu Hornafjarðar og skoðaðir nokkrir skemmtilega staði sem tengjast sögunni. Stefanía Sigurjónsdóttir hefur umsjón með starfinu í sumar.
" Í sumar förum við í eina vinnuferð og þá ætlum við að hjálpa til við undirbúning Humarhátíðar og förum svo í sund á eftir. Það verður farið í heimsókn í fyrirtæki, við förum á lúruveiðar, út á Melatanga og í Mikley svo fátt eitt sé nefnt. Ferðirnar verða á þriðjudögum og byrja klukkan 13. Við viljum minna foreldra á að börnin eiga að koma klædd eftir veðri og alltaf að hafa með sér nesti nema í síðustu ferð sumarsins sem verður óvissuferð þá er best að hafa með sér veiðistöng og þá ætlum við að grilla fyrir börnin".
Hver ferð kostar 500 krónur og er skráning á bókasafninu í síma 470-8050 Hefur þetta verið vel sótt s.l. ár og er mikilvægt að krakkarnir skrái sig. Er dagskráin komin inn á heimasíðu Menningarmiðstöðvar, sjá hér. Í myndasafninu á heimasíðunni er hægt að skoða myndir úr fyrri ferðum.
"Í gær, 9. júní, fór Menningarmiðstöðin með tíu hress börn inn að Hólmi í Laxárdal í fornleifarannsóknir. Það var hann Ármann fornleifafræðingur sem tók á móti okkur og leiddi um svæðið. Við byrjuðum á að rifja upp það sem okkur var sagt um blóthúsið í fyrra og skoðuðum svo það sem verið er að gera núna. Verið er að grafa upp skálann og fornleifafræðingarnir verða í Hólmi þessa viku en færa sig síðan um set og hefja uppgröft á Bæ í Öræfum. Heimsóknin var mjög spennandi og krakkarnir lærðu eitt og annað um liðna tíma og störf fornleifafræðinga. Störf fornleifafræðinga snúast ekki eingöngu um að leita gersema liðinna tíma en Marteinn félagi okkar í barnastarfinu virðist vera upprennandi fornleifafræðingur því hann fann merkilegan stein sem nefnist kljásteinn og var það góður fundur. Að lokinni skoðun settumst við svo niður og borðuðum nestið okkar".


