Veggurinn minn á Bókasafninu
Veginn minn þessa viku á Guðný Eiríksdóttir
Vegginn minn þessa vikuna á Guðný Eiríksdóttir Guðný gerði myndirnar sjálf og er ein þeirra saumuð út og hinar eru málaðar með vatnslitum. Myndin sem er saumuð út er af Maríu mey með jésúbarnið í fanginu. Myndina saumaði Guðný fyrir 5 árum síðan. Önnur vatnslitamyndin er af Horni og er máluð árið 1998. Myndin er í uppáhaldi hjá Guðný þar sem horn er einn af hennar uppáhaldsstöðum. Þangað kom hún oft í æsku og hélt mikið upp á Sigurjón á Horni. Þriðja mynd Guðnýjar er að Hvalnesi og er máluð árið 1997. Á myndinni má sjá Hvalnesvita og Fjallið Tófuhorn.



